Föstudagur - 12.12 2008 - 21:37 - Ummæli ()

Björn Bjarnason birtir úrslit ESB- könnunar Samtaka atvinnulífsins. Álíka margir með og á móti

husatvinnulifsins.jpgBjörn  Bjarnason dómsmálaráðherra segir á vefsíðu sinni í kvöld að niðurstöður liggi fyrir í skoðanakönnun sem Samtök atvinnulífsins gerðu á dögunum meðal félagsmanna sinna um áhuga á aðild að Evrópusambandinu. Hann spyr af hverju þær séu ekki birtar.

Björn segist hafa upplýsingar um að 43% þátttakenda hafi verið hlynntir aðild, 40% andvígir og 17% óvissir.

Könnunin varð tilefni deilna á milli forystumanna Samtaka atvinnulífsins og forystumanna eins aðildarfélagsins, Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ). Í framhaldinu gerði stjórn LÍÚ samþykkt um að yrði Samtökum atvinnulífsins beitt fyrir inngöngu Íslands í Evrópusambandið mundi hún leggja það til við félagsmenn að LÍÚ segi sig úr Samtökum atvinnulífsins


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar