Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi Vinstri grænna, sendi í gær fjölmiðlum án leyfis bréf frá sextán ára stúlku þar sem fram kemur nafn hennar auk mjög persónulegra upplýsinga. Borgarfulltrúinn gleymdi að taka nafn stúlkunnar út úr bréfinu áður en það var sent.
Ríkisútvarpið sagði frá þessu í kvöld.
Í fréttinni segir að í framhaldi af átakafundi Velferðarráðs Reykjavíkurborgar í gær þar sem tekist var á um framtíð unglingasmiðja í borginni, hafi Þorleifur sent fjölmiðlum bréf sextán ára stúlku sem átt hefur athvarf í einni unglingasmiðju borgarinnar. Í haus bréfs Þorleifs til fjölmiðla stendur: „Þetta bréf fékk ég í gær. Tek nafnið út“.
RÚV segir að Þorleifur hafi hins vegar ekki tekið nafnið út því þar komi fram fullt nafn stúlkunnar, aldur og ítarleg lýsing á erfiðleikum hennar. RÚV segir að Þorleifur hafi hvorki haft leyfi stúlkunnar né foreldra hennar til að birta nafnið.
Ennfremur segir að móður stúlkunnar hafi verið brugðið yfir að svo persónulegum upplýsingum um dóttur hennar hefði verið dreift í leyfisleysi.
