Mánudagur - 15.12 2008 - 14:38 - Ummæli ()

Blaðamenn DV í yfirlýsingu: Aldrei þurft að þola ritskoðun

dv-i-dag.jpgBlaðamenn DV hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna fullyrðinga Jóns Bjarka Magnússonar, fyrrverandi blaðamanns á DV, um að komið hafi verið í veg fyrir birtingu fréttar sem hann skrifaði fyrir blaðið um Sigurjón Þ. Árnason fyrrverandi bankastjóra Landsbankans.

Jón Bjarki sagði upp störfum á blaðinu í gær.

Reynir Traustason ritstjóri DV segir í samtali við mbl.is í dag að það sé bull að óeðlilegar ástæður hafi legið að baki því að ákveðið var að birta ekki grein Jóns Bjarka. Fréttin hafi einfaldlega verið gömul og ekki bætt neinu við það sem fram hafði komið á Eyjunni.

Haft er eftir Hreini Loftssyni, stjórnarformanni Birtings, sem gefur út DV, á Vísi.is í dag að hann hafi ekki krafist þess að fréttin yrði stöðvuð. Hann segist ekki að skipta sér af fréttaflutningi af þessu tagi hjá DV eða dv.is eða öðrum miðlum hjá Birtingi en hafi samt „iðulega gert athugasemdir við orðalag og framsetningu.“ Hann segist alls ekki sáttur við allt sem fram kemur í DV.  „En að ég sé að hlutast til um það hvað þar birtist eða þar birtist ekki er alveg af og frá,“ segir Hreinn. Ritstjórn DV ákveði það algjörlega sjálf.

Yfirlýsing blaðamanna DV er eftirfarandi:

„Í ljósi skrifa Jóns Bjarka Magnússonar, sem birtust á vefritinu Nei, vilja blaðamenn DV koma eftirfarandi á framfæri:

Fyrrverandi blaðamaður DV, Jón Bjarki Magnússon, heldur því fram á vefritinu Nei, að ritstjóri DV hafi falið frétt um fyrrverandi bankastjóra Landsbankans. Í sömu grein hvetur hann blaðamenn til að stíga fram og segja frá ef fréttaskrif þeirra hafi sætt ritskoðun.

Í tilefni þessara orða vilja blaðamenn árétta nokkur atriði. Blaðamenn DV hafa aldrei þurft að þola ritskoðun í þeim fjölmörgu, og oft viðkvæmu málum, sem þeir hafa fjallað um. Blaðmenn DV eru ósérhlífnir og þjóna eingöngu sannleikanum og almenningi í heiðarlegri viðleitni til að upplýsa um málefni sem oftar en ekki brenna á þjóðinni. Margoft hefur DV sýnt tilgang sinn og hollustu gagnvart lesendum sínum, og nægir að nefna þegar blaðið upplýsti almenning um skilyrði Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eða huldufélagið Stím ehf., auk þeirra fjölmörgu atburða sem DV hefur fjallað um að undanförnu.

Blaðamenn DV eru að engu leyti undir vilja og skoðanir eigenda DV eða hagsmunaaðila settir.

Blaðamenn DV hafa unnið heilshugar að fréttum fyrir almenning og munu gera áfram.

Virðingarfyllst

Blaðamenn DV“

Sjá aðra umfjöllun Eyjunnar um málið í dag hér og hér.


Ummæli:

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Fréttir

Facebook

Facebook vinir

Facebook síða Twitter síða RSS straumar