Gjöf forseta Íslands til Hillary Clinton árið 1999 er komin á uppboð á Ebay.com.
Morgunblaðið segir frá þessu í dag.
Gripurinn var gjöf sem forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, gaf Hillary, sem þá var forsetafrú Bandaríkjanna, þegar hún kom til Íslands árið 1999 á alþjóðlega ráðstefnu um konur og lýðræði. Um er að ræða listaverk, egg á glerfæti.
Morgunblaðið segir að myndir af gripnum fylgi með uppboðslýsingunni, og á glerfætinum standi: Forseti Íslands undir fána og skjaldarmerki. Á myndunum sjáist einnig að gripurinn hefur á sínum tíma verið skráður í alríkisskrá yfir gjafir til forsetahjónanna fyrrverandi.
Nafns þess er hannaði listaverkið og smíðaði er hvergi getið.
Seljandi er Gateway Antiques sem kveðst hafa keypt gripinn á uppboði í New York. Hann er í uppboðsskrá metinn á rúmlega 35 þúsund krónur.
