Mánudagur - 15.12 2008 - 23:18 - Ummæli ()

Upptaka sýnir að Reynir Traustason lét undan þrýstingi: „Hótað var að stöðva prentun DV“

jon-bjarki.jpgHljóðupptaka sem spiluð var í Kastljósi í kvöld leiðir í ljós að Reynir Traustason ritstjóri  DV lét undan þrýstingi um að blaðið birti ekki frétt um Sigurjón Þ. Árnason, fyrrum bankastjóra Landsbankans í byrjun nóvember.

Þetta stangast á við yfirlýsingu ritstjóra DV í dag, Reynis og sonar hans Jóns Trausta Reynissonar, um að það sé alrangt að „stórir aðilar hafi stöðvað frétt DV.“

Játning Reynis kom uppúr kafinu með dramatískum hætti í kvöld, þegar Kastljós spilaði leynilega hljóðupptöku sem blaðamaðurinn sem skrifaði fréttina, Jón Bjarki Magnússon, hafði gert af samtali þeirra Reynis um málið viku eftir að það kom upp.

Jón Bjarki, sem hætti á DV í gær og ljóstraði fyrst upp um málið í grein sem hann birti á vefritinu NEI í morgun. Hann sagði í viðtali í Kastljósi að hann viti ekki enn hvaða aðilar hafi stöðvað fréttina en honum hafi fundist að það, sem kom fram í samtali hans við Reyni vera það stórt mál að hann taldi sig ekki getað þagað yfir því. „Að það sé í raun hlutverk mitt sem blaðamanns að uppljóstra um svona mál, því ef ég segi ekki frá þessu, þá er allt annað sem ég er að vinna ekki þess virði.“

Ritstjórar DV, feðgarnir Reynir Traustason og Jón Trausti Reynisson, höfðu sent frá sér yfirlýsingu í dag þar sem þeir sögðu lýsingu Jóns Bjarka alranga og gerðu lítið úr blaðamennsku hans. Í yfirlýsingunni sagði m.a.:

„Jón Bjarki segir að stórir aðilar hafi stöðvað frétt DV. Það er alrangt og óskiljanlegt hvernig hann hefur öðlast þann skilning. Hann lét þess ekki getið í yfirlýsingu sinni að síðasta þriðjudag var önnur frétt hans stöðvuð. Þar fjallaði hann um mótmælendur en leitaði ekki sjónarmiða þeirra sem sökum voru bornir. Ábendingar bárust einnig um að hann hefði farið offari gegn lögreglu á vettvangi mótmæla og ekki virt mörk blaðamennsku. Lögreglan er hér með beðin afsökunar á framgöngu hans og skrifum sem birtust.“

Frétt DV var skrifuð í kjölfar upplýsinga sem fyrst birtust í Orðinu á götunni og bloggi Andrésar Jónssonar hér á Eyjunni, og fjallaði um að Sigurjón væri að koma á fót ráðgjafarfyrirtæki í húsnæði Landsbankans og að hann hyggðist m.a. vinna fyrir Landsbankann.  DV birti svo fréttina í dag á vef blaðsins.

Í hljóðupptökunni heyrist Reynir lýsa því fyrir blaðamanninum hvers vegna hann hafi talið sig þurft að stoppa fréttina: „Við stóðum bara andspænis þessum hroðalegu örlögum, að keyra á þessu [þ.e. birta fréttina] eða þurfa, þess vegna, að pakka saman, af því okkur er ógnað einhvers staðar að, skilurðu. Og þá þarf maður að vega og meta; vill maður taka slaginn fyrir þetta mál, eða vill maður það ekki þegar málin eru komin í þennan farveg að það er bara sagt við okkur: Það verður bara slökkt á ykkur. …Ég er sko bara grátbeðinn að gera þetta ekki. Félagið er að skipta um eigendur og það var bara allt komið í háaloft. …Vildi ég ógna allri okkar tilvist fyrir þetta mál?“

Af lýsingu Reynis á upptökunni má ráða að Sigurjón hafi orðið mjög órólegur vegna fréttarinnar á þeim tímapunkti sem Hreinn Loftsson var að eignast blaðið alfarið. Sigurjón hafi verið að „fara yfirum og þá fara einhverjir aðrir farið yfirum, … það myndaðist einhver hystería og á endanum sagði ég, Ókei. við skulum bara bíða með þetta. Þetta var ekki þannig að við værum að upplýsa þjóðarglæp.“ Reynir segir að á endanum muni DV segja frá þessu en „þetta er þannig land, að það var hótað að loka, hótað að stöðva prentun DV, sem að… Björgófur Guðmundsson á prentsmiðjuna. Ég bara berst við þann djöful og við munum taka hann niður og þá verður allt miklu heilbrigðara.“

Og síðar í samtalinu segir Reynir: „Þegar maður stendur andpænis því að það er sagt: Þarna eru bara öfl sem munu, sko, stúta okkur. Hvað á maður að segja þá?“


Ummæli:

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Fréttir

Facebook

Facebook vinir

Facebook síða Twitter síða RSS straumar