Mánudagur - 15.12 2008 - 23:37 - Ummæli ()

Talsmaður Björgólfs: Fáránleg tilgáta að hann hafi skipt sér af skrifum DV um Sigurjón

bjorgolfur-gudmundsson.jpgÞað er fáránleg tilgáta að Björgólfur Guðmundsson fyrrverandi aðaleigandi Landsbankans hafi verið að skipta sér af skrifum DV um Sigurjón Þ. Árnason fyrrverandi bankastjóra í nóvember síðast liðnum. Hann er ekki „stóri aðilinn“ sem Reynir Traustason ritstjóri vísar til þegar hann talar um að reynt hafi verið að knésetja blaðið.

Þetta sagði Ásgeir Friðgeirsson fjölmiðlafulltrúi Björgólfs Guðmundssonar við Eyjuna í kvöld.

Skilja hefur mátt upptöku af samtali Reynis Traustasonar ritstjóra DV við Jón Bjarka Magnússon blaðamann þannig að Reynir hafi verið gefa í skyn að Björgólfur hafi hótað að stöðva útgáfu DV í nóvember síðast liðnum ef blaðið birti frétt um verkefni sem Sigurjón var að vinna í húsnæði bankans.

Samkvæmt heimildum Eyjunnar var ekkert samband á milli Björgólfs og Sigurjóns á þessum tíma og hefur ekki verið síðan bankarnir hrundu.  Björgólfur átti engin veð eða kröfur á hendur DV og því  ekki um að ræða hagsmunatengsl þar á milli.

Heimildarmenn Eyjunnar benda á að á þessum tíma hafi Glitnir verið kominn með forræði í öllum málefnum Árvakurs, þar á meðal prentsmiðjunnar.  Möguleikar Björgólfs á að hafa þar einhver áhrif hafi engir verið. Einu hagsmunatengslin í þessu máli séu talin vera þau að Sigurjón Þ. Árnason var á þessum tíma farinn að vinna sem ráðgjafi fyrir Jón Ásgeir Jóhannesson. Hann vann fyrir hann að úrlausn mála 365-miðla og stofnun Rauðsólar.

Þegar málið kom upp í nóvember var einnig unnið að því að flytja útgáfufyrirtæki DV, Birting, úr móðurfyrirtækinu Stoðum Invest. Miklir hagsmunir voru þar á ferð.


Ummæli:

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Fréttir

Facebook

Facebook vinir

Facebook síða Twitter síða RSS straumar