Þriðjudagur - 16.12 2008 - 18:09 - Ummæli ()

DV: Reynir áfram. Nýtur stuðnings stjórnar. Blaðamaður hættir vegna „lyga og ritskoðunar“

reynirtraustason.jpgReynir Traustason ætlar að halda áfram sem ritstjóri DV. Hann nýtur stuðnings Hreins Loftssonar aðaleiganda blaðsins og stjórnarmanna í útgáfufélaginu Birtingi.

Þetta kom fram í kvöldfréttum RÚV.

Einn blaðamanna DV, Valur Grettisson, sagði upp störfum í dag. „Ástæðan er sú að upp er komið umhverfi sem ég hvorki get, né vil, starfa við“, sagði hann í yfirlýsingu sem hann sendi fjölmiðlum. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 var haft eftir Vali að hann hefði sagt upp vegna þess að ritstjórinn hefði verið staðinn að lygum og ritskoðun.

Ekki liggur fyrir hvort fleiri blaðamenn hætta. Þeir funduðu í dag án ritstjóra og réðu ráðum sínum og síðan með ritstjórunum. Í samtali RÚV við trúnaðarmann blaðamanna, Kolbein Þorsteinsson, kom fram að blaðamenn hefðu hvorki séð ástæðu til að lýsa yfir trausti á ritstjórann né vantrausti á hann.

Á bloggi og öðrum netsíðum hafa frá því í gærkvöldi verið uppi mjög ákveðnar kröfur um að Reynir láti af störfum sem ritstjóri eftir að í ljós kom að hann sagði ósatt um birtingu fréttar í DV og samskipti sín við fyrrverandi blaðamann.

Fram kom í fréttum Stöðvar 2 að ekki hefði verið hægt að ná sambandi við Reyni í dag til að fá hann í viðtal, en í morgun hefði hann viðurkennt í símaviðtali að trúverðugleiki DV hefði skaðast vegna málsins. Þá útilokaði hann ekki að hann hætti sem ritstjóri.

Í kvöld sendi Reynir yfirlýsingu til fjölmiðla, þó ekki Eyjunnar, þar sem hann staðfesti að hann mundi sitja áfram sem ritstjóri enda nyti hann trausts stjórnar Birtings. Hann biðst afsökunar á ummælum sínum um nafngreinda einstaklinga í samtalinu sem spilað var í Kastljósi í gærkvöldi. Um viðbrögð sín við segir hann:

Vandasamt er að bregðast við í slíkum aðstæðum og ég harma að fyrstu viðbrögð mín voru ónákvæm enda mundi ég ekki samtal mitt við starfsmanninn frá orði til orðs. Ég bið samstarfsmenn mína og alla hlutaðeigandi afsökunar en tel að sú yfirsjón sé ekki af þeirri stærðargráðu að réttlæti uppsögn af minni hálfu.

Mál Reynis Traustasonar var til umræðu í þættinum Ísland í dag á Stöð 2 í kvöld. Þar fordæmdi Agnes Bragadóttir blaðamaður á Morgunblaðinu framgöngu Reynis og hvatti til þess að honum yrði vikið úr Blaðamannafélagi Íslands.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar