Rúmlega fjörutíu framsóknarmenn víðs vegar að af Austurlandi komu saman til fundar á Egilsstöðum í kvöld og samþykktu að skora á Sigmund Davíð Gunnlaugsson skipulagshagfræðing að gefa kost á sér í formannskjöri á þingi Framsóknarflokksins sem haldið verður dagana 16. til 18 janúar á næsta ári.
Heimildarmenn Eyjunnar telja vaxandi líkur á því að Sigmundur taki slaginn. Þegar hafa þrír gefið kost á sér í formannskjörinu: Höskuldur Þórhallsson alþingismaður, Páll Magnússon bæjarritari og Jón Vigfús Guðjónsson sjómaður.
Sigmundur fundaði með um tuttugu manna hópi framsóknarmanna á Egilsstöðum á laugardaginn. Þar kom fram mikill stuðningur við að hann færi fram.
Samkvæmt heimildum Eyjunnar á framboð Sigmundar hljómgrunn meðal framsóknarmanna víða um land. Er sagt að grasrótin í flokknum leggi á það þunga áherslu að næsti formaður flokksins hafi engin tengsl við þær pólitísku ákvarðanir og þá stefnumótun sem leiddi til núverandi ástands í þjóðfélaginu. Þá vilji grasrótin að nýi formaðurinn tengist á engan hátt þeim fylkingum sem tekist hafa á í flokknum undanfarin ár.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er fæddur 1975. Hann hefur verið flokksbundinn í Framsóknarflokknum í nokkur ár. Faðir hans, Gunnlaugur Sigmundsson, var þingmaður Framsóknarflokksins í hinu gamla Vestfjarðakjördæmi 1995 til 1999.
LEIÐRÉTT 19. DESEMBER:
Í viðtali við Vísi eftir að ofangreind frétt birtist segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson að hann sé ekki flokksbundinn framsóknarmaður. Ennfremur að hann sé ekki á leiðinni í pólitík sem stendur.
