eyjan.is

Fimmtudagur 18.12.2008 - 09:45 - Ummæli ()

Tryggvi hættur í Landsbankanum. Vonar að bankinn fái starfsfrið

landsbankinn4.jpgTryggvi Jónsson, fyrrum aðstoðarforstjóri Baugs, hefur sagt upp störfum í Landsbankanum og þegar látið af störfum. Störf hans þar hafa sætt harðri gagnrýni að undanförnu. Ekki er nema hálft síðan að hann var dæmdur í 12 mánaða skilorðsbundið fangelsi í tengslum við Baugsmálið.

Í yfirlýsingu Tryggva um starfslokin segir:

Ástæðuna má rekja til þess ástands sem skapast hefur í kringum störf mín þar og vona ég að uppsögn mín megi verða til að þess að Landsbankinn fái þann starfsfrið sem hann á skilið.  Umræðan um mig og starf mitt hjá bankanum hefur að mínu mati farið langt yfir öll velsæmismörk og hafa síðustu vikur verið mér og ekki síður fjölskyldu minni, afar erfiðar. Ég get setið undir ýmsu en þegar mótmæli af þeirri tegund sem sést hafa síðustu daga eru farin að bitna á fjölskyldu minni segi ég hingað og ekki lengra. Ég vil þakka öllu starfsfólki Landsbankans fyrir gott samstarf, stuðning og góða viðkynningu og vona að því farnist vel í framtíðinni.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is