Ólafur Ólafsson leyndi eignarhaldi á Serafin Shipping
Árið 2005 leit félagið Icelandic Group dagsins ljós þegar SH og Sjóvík sameinuðust. Hluthafar Sjóvíkur eignuðust þriðjung í þessu nýja félagi. Ári áður hafði Sjóvík keypt Icelandic Seafood Corporation af SÍF en einn eigenda Sjóvíkur var félagið Serafin Shipping og fékk það í sinn hlut um 6% í Icelandic Group.
Morgunblaðið segir frá þessu á síðu 4 í dag. Þar segir jafnframt að Ólafur Ólafsson, stjórnarformaður SÍF hafi verið eigandi Serafin Shipping en að hann hafi haldið því leyndu fyrir stjórn SÍF þegar ákveðið var að selja Icelandic Seafood til Sjóvíkur.
Ólafur tók ekki þátt í lokafrágangi málsins hjá stjórn SÍF og sagði ástæðu þess vera tengsl hans við Sund (stærsta eiganda Sjóvíkur en Sund var þá hluthafi í Keri ásamt Ólafi) en minntist ekkert á eignarhald sitt yfir Serafin Shipping.
Að lokinni sameiningu SH og Sjóvíkur var eignarhluta Serafin Shipping í hluta Icelandic Group skipt á milli tveggja félaga: Fordace Limited og Deeks Associates.
Með 6% hlut í Icelandic hefði Serafin orðið tilkynningarskylt við Kauphöllina.
Eftir skiptin var hlutur Fordace í Icelandic 4,47% og hlutur Deeks 1,49% en hvorugt þessara félaga átti yfir 5% í Icelandic Group og því ekki tilkynningarskylt til Kauphallarinnar.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
