Geir H. Haarde neitaði því í dag að hafa haft vitneskju um tilboð breska fjármálaeftirlitsins (FSA) um að gegn 200 milljóna punda fyrirgreiðslu væri FSA tilbúið að færa reikninga Icesave yfir í breska lögsögu.
Forsætisráðherra segir í skriflegu svari á Alþingi við fyrirspurn Sivjar Friðleifsdóttur, Framsóknarflokki, að sér hafi ekki heldur verið kunnugt um að embættismenn sínir eða ráðgjafar hefðu vitneskju um slíkt tilboð fra FSA.
Áður höfðu þeir Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra og Árni Mathiesen fjármálaráðherra sömuleiðis báðir neitað að hafa haft vitneskju um slíkt tilboð frá FSA rétt fyrir setningu neyðarlaganna í byrjun október.
Forsvarsmenn gamla Landsbankans hafa fullyrt að sunnudaginn 4. október hafi ráðgjöfum stjórnvalda og Seðlabankanum verið tilkynnt að breska fjármálaeftirlitið hefði boðist til að veita viku frest til þess að koma starfsemi Landsbankans undir breska lögsögu, sem hefði komið í veg fyrir þau vandræðin sem skapast hafa vegna Icesave – skuldbindinga.
Landsbankinn sagði i yfirlýsingu 14. október m.a. að bankinn hafi á sinum tíma „óskað eftir sveigjanleika af hálfu FSA til að unnt yrði að framkvæma yfirfærsluna í nokkrum skrefum en ekki var fallist á nægilegan sveigjanleika af hálfu FSA.“ Bankinn sagði að vinna við flytivinnslu málsins hafi staðið yfir „þegar þeir atburðir urðu sem leiddu til þess að stjórn Landsbankans óskaði eftir atbeina Fjármálaeftirlitsins þann 7. október s.l.“
Seðlabankinn sagði í athugasemd um málið 27. október að Landsbankinn hefði í bréfi 6. október óskað eftir 200 milljóna punda fyrirgreiðslu, sem hafi verið hafnað. Í beiðninni hafi hins vegar hvergi verið minnst á flýtiafgreiðslu FSA og að frásögn Björgólfs Thors Björgólfssonar af Thors Björgólfssonar i Kompásþætti af rás atburða hafi verið röng.
