Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir ekki fyrirhugað að gera breytingar á ráðherraliði Sjálfstæðisflokksins um áramótin. Þetta sagði hann í samtali við Sölva Tryggvason, ritstjóra Íslands í dag.
Morgunblaðið segir frá þessu og jafnframt að Geir eigi ekki eiga von á að slíkar breytingar verði gerðar fyrir landsfund Sjálfstæðisflokksins sem verður haldinn síðustu helgina í janúar.
Hann segist þó ekki útiloka að breytingar verði gerðar á ríkisstjórninni áður en kjörtímabilinu lýkur.
Þá segir Geir að lífskjör hérlendis muni fara tvö til þrjú ár aftur í tímann vegna efnahagshrunsins, en vonast sé til að tiltölulega hratt verði rétt úr kútnum, árið 2009 verði mjög erfitt en vonandi sjáist ljós árið 2010.
Geir er ánægður með hvernig farið var af stað með krónuna sem hann telur forsendu þess að verðbólga náist niður og vextir lækki í kjölfarið.
Þá sagði hann vonandi hægt að slaka á höftum með fjármagnsviðskipti fljótlega eftir áramót, en ítrekaði áskorun sína um að auðmenn með eignir í útlöndum færðu fjármagn sitt heim.
