eyjan.is

Sunnudagur 28.12.2008 - 20:17 - Ummæli ()

Milljarðafærslurnar hjá Kaupþingi: FME fékk fyrir tveimur mánuðum sömu upplýsingar og lögreglan

kaupthing-2.jpgSkömmu eftir fall Kaupþings fékk Fjármálaeftirlitið (FME) sömu ábendingu og Efnahagsbrotadeild fékk fyrir hálfum mánuði um milljarða millifærslur frá bankanum inn á erlenda bankareikninga. Upplýsingafulltrúi Fjármálaeftirlitsins vill ekki gefa upp hvort það aðhafðist eitthvað í málinu. Lögreglan hóf hins vegar athugun strax og henni barst hin nafnlausa ábending um málið.

Þetta kom fram í fréttum Stöðvar tvö í kvöld.

Málið snýst um millifærslur upp á samtals hundrað milljarða króna frá Kaupþingi hér heima inn á erlenda bankareikninga. Grunur leikur á að stjórnendur bankans hafi fært vildarviðskiptavinum stórar fjárhæðir á silfurfati.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is