Viðskiptanefnd Alþingis ætlar að kalla fulltrúa Fjármálaeftirlitsins á fund nefndarinnar eftir áramót og óska eftir upplýsingum um rannsókn FME á meintum millifærslum Kaupþings á 100 milljörðum króna inn á reikninga erlendis.
Ágúst Ólafur Ágústsson, formaður nefndarinnar sagði í fréttum Stöðvar 2 að það þyrfti að „fá einhvern botn í þetta. Við þurfum líka að átta okkur á hvort Fjármálaeftirlitið er í stakk búið til að sinna auknum málafjölda.“ Ágúst segir eftirlitinu „ekki í hag að sitja á svona málum.“
FME hefur rannsakað þessar millifærslur frá því í október og efnahagsbrotadeild bíður eftir niðurstöðu frá FME um það hvort þær séu hugsanlega saknæmar.
Sigurður Einarsson fyrrum stjórnarformaður Kaupþings og Hreiðar Már Sigurðsson fyrrum forstjóri bankans segja í yfirlýsingu í dag, að engir fjármunir hefðu verið færðir með óeðlilegum eða ólögmætum hætti úr sjóðum bankans, hvorki til eigenda hans né annarra.
Þeir segja að enginn hagnaður hafi orðið til vegna sérstakra samninga við valinn hóp viðskiptavina bankans eða eigenda og að starfsemi bankans hafi alla tíð verið innan þess ramma sem lög og reglur um rekstur hans hafa kveðið á um.
„Þeim rannsóknum sem nú standa yfir á starfsemi bankans er því fagnað og vonandi er að til þeirra verði vandað í hvívetna til þess að hið sanna um starfsemi bankans leysi tilhæfulausar sögusagnir sem allra fyrst af hólmi,“ segir í yfirlýsingunni.
Ágúst Ólafur segir of mikla leynd í kringum fjármálamarkaðinn og of mikil leynd sé um gjörðir Fjármálaeftirlitsins og annarra eftirlitsstofnana. Svona leynd og pukur, þó það sé samkvæmt lögum, býður heim tortryggniog óþægilegri stöðu. Við höfum bara ekkert efni á því, núna þegar endurreisn Íslands hefst á nýjan leik.
Hann segir ekki víst að rannsóknin taki óeðlilega langan tímaen segist treysta því að „þeir séu að verja öllum sínum úrræðum í að sinna þessum málum.“
