Fimm starfsmönnum Kaupþings sagt upp: Skilaboð um að enginn sé ósnertanlegur
Fimm starfsmönnum Kaupþings var sagt upp störfum í gær og fyrradag. Í Morgunblaðinu segir að um sé að ræða þrjá framkvæmdastjóra, einn forstöðumann og einn upplýsingafulltrúa.
Þetta eru Bjarki Diego, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs og fyrrverandi nefndarmaður í skilanefnd gamla Kaupþings, Guðný Arna Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri fjármála og rekstrar, Þórarinn Sveinsson, framkvæmdastjóri eignastýringar, Jónas Sigurgeirsson, forstöðumaður upplýsingarsviðs, og Benedikt Sigurðsson upplýsingafulltrúi.
Nokkrar ástæður munu liggja að baki uppsögnunum, í fyrsta lagi hafi hópur stjórnenda sem enn var að störfum í Kaupþingi verið mjög nátengdur Sigurði Einarssyni, fyrrverandi stjórnarformanni bankans, og Hreiðari Má Sigurðssyni, fyrrverandi forstjóra hans.
Þetta sé hópur starfsmanna frá upphafsárum Kaupþings sem hafi verið mjög samheldinn, en uppsagnir þeirra sendi skilaboð innan bankans um hvernig nýir stjórnendur hyggist taka á málum og að slíta ofangreind tengsl.
Einnig hafi þótt nauðsynlegt að skilaboð skiluðu sér út til þjóðfélagsins, um að enginn væri ósnertanlegur innan bankans heldur gengju nýir stjórnendur fram af festu og segðu stjórnendum upp ef ástæða þætti til.
PriceWaterhouseCoopers hefur lokið við gerð skýrslu um rannsókn á starfsemi Kaupþings á síðustu mánuðum fyrir hrun íslenska bankakerfisins. Henni á að skila til Fjármálaeftirlitsins í dag, en heimildir Morgunblaðsins herma að að eitt og annað komi þar fram sem hægt sé að setja spurningarmerki við. Það sé þó ekki þar með sagt aðþað tengist þeim sem var sagt upp nú.
Rannsókn óháðra aðila á starfsemi íslensku bankanna síðustu mánuðina fyrir bankahrun er að mestu lokið. PriceWaterhouseCoopers, sem rannsakaði Kaupþing, og Deloitte, sem rannsakaði Landsbankann, eiga að skila skýrslum um rannsóknir sínar til Fjármálaeftirlitsins í dag.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
