Miðvikudagur - 31.12 2008 - 15:03 - Ummæli ()

Kryddsíldin flautuð af vegna skemmda á útsendingarbúnaði

kryddsildin2.jpgÞættinum Kryddsíld á Stöð 2 er lokið svo ekki rættust orð stjórnmálamanna fyrr í dag þegar þeir sögðu Kryddsíldina leggjast vel í sig.

Skipt yfir í auglýsingahlé og síðan kom upp skjámynd þar sem stóð að
Kryddsíldinni væri lokið vegna skemmda á útsendingarbúnaði.

Mótmælendur brenndu útsendingarsnúrur og hafa unnið skemmdir á eigum Hótels Borgar. Lögreglan beitti piparúða á mótmælendur úr fordyri hótelsins.

Myndin er frá eldri Kryddsíldarþætti þegar allt var með ró og spekt í þjóðfélaginu.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar