eyjan.is

Fimmtudagur 01.01.2009 - 15:46 - Ummæli ()

Biskup Íslands: Nýársádrepa um efnahagshrun

karl-sigurbjornsson.jpgBiskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson, hóf nýárspredikun sína í Dómkirkjunni í morgun með æðruleysisbæninni, sem í hugum margra tengist öðru fremur baráttunni við fíknir. Hann sagði bænina vera „ótal mörgum haldreipi og leiðarsteinn í átökum við veikleika og ósigra“ og flutti harða ádrepu um efnahagshrunið.

Nokkur brot úr predikun biskups:

Einhverjir fóru framúr sjálfum sér, og ofan fyrir. Og við vorum dregin með sem þjóð. Ísland hefur verið á forsíðum virtustu dagblaða heimsins og því haldið fram að þjóðin hafi farið á neyslufyllerí. Nú gjöldum við dýru verði græðgi og hroka undangenginna ára, og berum þyngri skuldaklafa en nokkur önnur þjóð er bundin.  Við vorum í hópi ríkustu þjóða heims og lifðum hátt. Öllu virtist vikið til hliðar nema nauðsynjum fjármagnsins, fátt virtist álitið heilagt nema rétturinn að græða.

*

Afleiðingar hrunsins sem við horfumst nú í augu við gera miklar kröfur til okkar og munu gera um ókomin ár. Þjóðin er látin axla þungar byrðar. En hér felast líka tækifæri til að endurmeta og hugsa upp á nýtt tilgang auðsins, hinna efnislegu gæða, að spyrja út í siðgæðið og forgangsröðunina sem mótar þjóðfélag okkar og menningu. Ein mikilvægasta lexían gæti einmitt verið svarið við spurningunum: Hver var eiginlega tilgangur þessa gífurlega auðs sem við sáum vaxa án afláts og safnast á æ færri hendur? Og hvar er hugsýnin sem knýr okkur áfram nú?
Getum við sem þjóð og samfélag fundið framtíðarsýn aðra og víðari en þá að lágmarka skaðann af efnahagsfárinu? Eða verða engin sjónarmið tekin gild nema hagsmunir fjármagnsins, aflsmunir auðsins?

*

Við þurfum samstöðu, þjóðarsátt um endurreisn. Ekki Nýja Ísland hf ! Heldur endurheimt sjálfsvirðingar, sjálfsaga þjóðar er virðir og metur land sitt, sögu, tungu og menningu sem gerir okkur að þjóð meðal þjóða.
Við þurfum að endurheimta þá sameiginlegu samfélagssýn á Íslandi, sem byggir á umhyggju og þjónustu umfram allt, á virðingu og trausti, á ábyrgð og skyldu fremur en réttindum, á langtíma uppbygging samfélags fremur en skyndigróða til eigin hagsmuna fárra. Látum það móta viðhorf og stefnu, ekki síst gagnvart þeim öldruðu og sjúku, fötluðu og svo börnunum! Þau mega ekki verða fórnarlömb félagslegrar upplausnar vegna fjármálahrunsins. Láttu augu barnsins litla vera skriftaspegill þinn, spurning til þín hvað þú hefur lagt fram til góðs, til heilla öðrum, þeim sem í námunda við þig eru, samfélagi, framtíðinni.

*

Svo er okkur líka mikilvægt að muna að við erum ekki ein í heiminum, Íslendingar. Við erum hluti alþjóðasamhengis, sem stundum er nefnt heimsþorpið. Ég þakka þeim mörgu sem þrátt fyrir áföll og erfiðleika hér heima hafa látið fé af hendi rakna til hjálparstarfs í fjarlægum löndum og þannig gera okkur kleyft að standa við skuldbindingar okkar gagnvart þróunarverkefnum og neyðaraðstoð meðal fólks sem býr við viðvarandi þrengingar, kreppu, óáran. Þeim megum við aldrei gleyma þó að kreppi hjá okkur um sinn. Neyð og hörmungar í fjarlægum löndum koma okkur við.

Nýársprédikun biskups í heild.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is