eyjan.is

Föstudagur 02.01.2009 - 18:01 - Ummæli ()

Kristján Arason hættur hjá Kaupþingi

kristjan-ara-thorgerdur.jpgKristján Arason tilkynnti samstarfsmönnum sínum hjá Kaupþingi í tölvupósti í dag að hann hefði látið af störfum hjá bankanum.

Kristján hefur verið framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs bankans og er eiginmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, menntamálaráðherra og varaformanns Sjálfstæðisflokksins.

Kristján er sjötti framkvæmdastjóri bankans sem hættir í vikunni. Áður var tilkynnt um uppsagnir Bjarka H. Diego yfirmanns fyrirtækjasviðs, Þórarins Sveinssonar yfirmanns eignastýringar, Guðnýjar Örnu Sveinsdóttur sem var yfir rekstrar- og fjármálasviði, svo og Benedikts Sigurðssonar upplýsingafulltrúa og Jónasar Sigurgeirssonar forstöðumanns samskiptasviðs bankans.

Kristján segir brotthvarf hans frá bankanum ekki hafa með fjármál hans sjálfs að gera og að starfslok hans verði í samráði við yfirmenn bankans.

Myndin er af vef menntamálaráðuneytisins, tekin heimsókn Krónprins Noregs í júní 2004.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is