Öryggisvörður og lögfræðingur stóðu yfir Hermanni Jónassyni forstjóra Tals þegar honum var sagt upp og vísað úr húsakynnum fyrirtækisins daginn fyrir gamlaársdag. „Óþægileg tilfinning,“ segir Hermann í viðtali við Vísi í dag og íhugar að leita réttar síns.
Uppsögnin var sögð vegna samnings sem forstjórinn gerði við Símann án þess að hafa haft samráð við stjórn fyrirtækisins, en annar samningur var í gildi við Vodafone. Hermann segist eingöngu hafa haft hagsmuni viðskiptavina Tals að leiðarljósi og vísar því á bug að stjórnin hafi ekki vitað af samningnum.
Símafyrirtækið Tal er í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. Í Morgunblaðsgrein sem hann ritaði og birtist degi áður en Hermanni var vikið frá störfum kvaðst hann hafa tamið sér harðdrægni í viðskiptum.
