Öryggisvörður stóð yfir brott- reknum forstjóra Tals. Fór á bak við okkur segir stjórnarformaður
Þórdís J. Sigurðardóttir stjórnarformaður Tals segir að Hermann Jónasson, sem vikið var úr stól forstjóra fyrirtækisins um áramótin, hafi leynt stjórnina upplýsingum. Sem stjórnarformaður geti hún alls ekki unnið með forstjóra sem fari á bak við sig og ætli ekki að virða gerða samninga. Hún segir að samningur sem Hermaður gerði við Símann hafa verið afglöp í starfi. „Forstjórinn samdi við Símann þótt Tal sé með fimm ára samning við Vodafone. Nú er Tal með samninga við tvö fyrirtæki sem bæði hóta málsókn,“ segir hún í viðtali við Fréttablaðið í dag.
Hermann segir í viðtali við Fréttablaðið í dag, að á stjórnarfundi 11. desember hafi hann kynnt að Tal stæði frammi fyrir því að viðskiptavinir fyrirtækisins hefðu ekki GSM-samband á hluta landsins frá 1. janúar. „Ég sagðist vera að skoða tvær leiðir: Annars vegar í gegnum Vodafone og hins vegar í gegnum Símann í samvinnu við Póst og fjarskiptastofnum. Mér var falið umbúðalaust að leysa málið með hagsmuni Tals og viðskiptavina þess í huga,“ segir Hermann sem kveður þetta staðfest í fundargerð.
Þórdís segir í Fréttablaðinu að fulltrúar Teymis í stjórn Tals hafi ekki samþykkt fundargerðina sem unnin hafi verið eftir forskrift Hermanns sem nú sé að snúa út úr því sem rætt hafi verið. Þau hafi talið að forstjórinn væri að leysa málið á grundvelli samningsins sem í gildi væri við Vodafone. Hermann segir vanda Tals hafa falist í því að samkvæmt úrskurði Póst- og fjarskiptastofnunar mætti Tal ekki hafa aðgang að farsímakerfi í gegnum tvö fyrirtæki. Vodofone hafi ekki eigið kerfi á Austurlandi heldur reikisamning við Símann sem ekki megi selja Tali aðgang að á meðan Tal sé með samning við Vodafone. „Eina færa leiðin til þess tryggja viðskiptavinum Tals áframhaldandi GSM-samband var að semja við Símann,“ segir Hermann í Fréttablaðinu.
Þórdís vísar þessu á bug í blaðinu. „Þetta er bara rugl. Við vorum einmitt með erindi fyrir Póst- og fjarskiptastofnun um að Tal fengi aðgang að kerfi Símans í gegnum samninginn við Vodafone. Þetta erindi dró Hermann til baka áður en niðurstaða fékkst.“
Vísir segir frá því í dag að öryggisvörður og lögfræðingur hafi staðið yfir Hermanni þegar honum var sagt upp og vísað úr húsakynnum Tals daginn fyrir gamlaársdag. „Óþægileg tilfinning,“ segir Hermann og kveðst íhuga að leita réttar síns.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
