Samkeppniseftirlitið er þessa stundina statt við húsleit í höfuðstöðvum Teymis á Suðurlandsbraut 18.
Þá er starfsfólk eftirlitsins að skoða gögn hjá símafélögunum Tal og Vodafone sem eru í meirihlutaeigu Teymis.
Þórdís Sigurðardóttir, stjórnarformaður Teymis, staðfestir þetta í samtali við Vísi og segist fagna því að samkeppniseftirlitið vinni vinnuna sína, enda heilbrigð samkeppni grundvöllur heiðarlegra viðskipta.
Á mbl.is segir Þórdís sér ekki kunnugt um hvort rannsókn Samkeppniseftirlitsins beinist aðeins að Teymi og fjarskiptafyrirtækjum þess eða fjarskiptamarkaðnum í heild sinni.
Hún kveðst ekki hafa séð heimild Samkeppniseftirlitsins, en segir allt gert til að aðstoða við upplýsingaöflun og að hún sé sannfærð um að rannsóknin leiði í ljós Teymi hafi eflt samkeppnina á símamarkaði á Íslandi.
Ekki liggur fyrir hvort Samkeppniseftirlitið hafi gert sambærilega húsleit hjá Símanum og Nova í morgun því ekki hefur náðst í Pál Gunnar Pálsson, forstjóra eftirlitsins.
