Föstudagur - 9.1 2009 - 08:47 - Ummæli ()

Lagaprófessor: Niðurfelling á persónulegri ábyrgð starfsmanna gamla Kaupþings lögleg

kaupthing22.jpgÍ Fréttablaðinu í dag kemur fram að Viðar Már Matthíasson, prófessor í lögum við Háskóla Íslands, telji að ákvörðun stjórnar Kaupþings um að fella niður persónulegar ábyrgðir starfsmanna af lánum til að kaupa hlutabréf í bankanum, hafi verið í samræmi við lög.

Nýja Kaupþing mun hafa fengið Viðar Má til að vinna álitsgerð um hvernig fara eigi með lánin og blaðið hefur í höndunum niðurstöðukafla álitsgerðarinnar, sem mun vera tugir blaðsíðna í heild.

Niðurstöður Viðars Más eru í grófum dráttum þær að ákvörðunin frá 25. september hafi verið lögleg. Hugsanlega megi þó rifta henni á grundvelli gjaldþrotalaga. Þá vakni hinsvegar spurning um hvernig skyldu starfsmanns sé háttað til að greiða lánið.

Verðmæti fjárins hjá stórum hluta starfsmannanna var samkvæmt upplýsingum frá Kaupþingi meira en sem nam skuldinni við bankann, en bréfin urðu verðlaus við fall bankans í byrjun október.

Starfsmenn gamla Kaupþings fengu um 50 milljarða króna að láni hjá bankanum til þess að kaupa í honum hlutabréf, en komið hefur fram að niðurfelling ábyrgðanna hafi verið gerð til að koma í veg fyrir að lykilstarfsmenn seldu hluti sína, sem hefði haft slæm áhrif á stöðu bankans.

Álitsgerðin lá fyrir í nóvember, en Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Kaupþings, væntir þess að málið verði til lykta leitt fyrir mánaðamót.


Ummæli:

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Fréttir

Facebook

Facebook vinir

Facebook síða Twitter síða RSS straumar