Mánudagur - 12.1 2009 - 09:08 - Ummæli ()

Fulltrúar allra flokka telja ástæðu til endurskoðunar á skipun dómara

img_5982.jpgÞó fulltrúar allra flokka í allsherjarnefnd Alþingis telji ástæðu til að endurskoða fyrirkomulag við skipanir dómara, bæði við héraðsdóma og Hæstarétt, vilja þeir ganga mislangt.

Í Fréttablaðinu í dag kemur fram að Birgir Ármannsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokks og formaður nefndarinnar, er í meginatriðum sáttur við núverandi kerfi, þótt ástæða sé til
endurskoðunar. Allsherjarnefnd hafi hins vegar mörg mikilvægari mál á sinni könnu.
Birgir segir mestu skipta að skipunarvaldið verði hjá dómsmálaráðherra þar sem hann beri pólitíska ábyrgð á gjörðum sínum.

Jón Magnússon, fulltrúi Frjálslynda flokksins, segir rökin um pólitíska ábyrgð ráðherra ógild og spyr hvenær dómsmálaráðherra hafi borið pólitíska ábyrgð á því að ganga fram hjá matsnefnd. Hann spyr einnig hvort Árni Mathiesen ætli að bera pólitíska ábyrgð á ráðningu Þorsteins Davíðssonar?“

Jón vill færa skipunarvaldið frá ráðherra til að aðgreina betur framkvæmda- og dómsvaldið.

Atli Gíslason, fulltrúi Vinstri grænna, er sammála Jóni og segir núverandi fyrirkomulag aðför að hinu þrískipta ríkisvaldi og vill að skipunarvaldið verði fært frá ráðherra bæði hvað varðar héraðs- og hæstaréttardómara. Aðalatriðið sé að pólitískar ráðningar heyri sögunni til.

Birgir segir hinsvegar að ráðningarnar yrðu jafnvel enn pólitískari ef Alþingi fengi að ráða, og vísar til Bandaríkjanna, þar sem slíkt fyrirkomulag gildir.

Siv Friðleifsdóttir, fulltrúi Framsóknarflokksins, vill eins og Jón og Atli taka skipunarvaldið af dómsmálaráðherra og segir brýnt að veita matsnefndum meira og skýrara vald. Eðlilegt væri að þingið þyrfti að samþykkja dómara.

Ellert B. Schram, fulltrúi Samfylkingarinnar, telur eins og Birgir að með samþykki Alþingis geti ráðning verið allt eins pólitísk og ráðningar ráðherra. Almennt sé hann þeirrar skoðunar skoðunar að ekkert sé óeðlilegt við það að dómarar séu skipaðir eins og nú er gert. Hins vegar þurfi gagnsærri reglur þar um sem betur yrði fylgt eftir.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar