Mánudagur - 12.1 2009 - 22:43 - Ummæli ()

Geir H. Haarde: Sammála Robert Wade um að efnahagsástandið gæti versnað

geir10frettir.jpgEins og staðan er núna í alþjóðlegum efnahagsmálum á ástandið eftir að versna. Allsherjar niðursveifla og kreppa gæti skollið á í nálægum löndum innan tíðar og haft áhrif á Íslandi. Þegar væru merki um erfiðleika í útflutningsgreinum.

Þetta sagði Geir H. Haarde forsætisráðherra í viðtali við Bubba Morthens í útvarpsþættinum Færibandið á Rás tvö í kvöld, þegar hann var spurður álits á ummælum prófessors Robert Wade í Kastljósi Sjónvarpsins í kvöld. Wade spáði því að efnahagsástandið á Íslandi ætti eftir að versna til muna fljótlega fyrir áhrif alþjóðlegrar efnahagskreppu og talaði um tímabilið mars til maí í því sambandi. Hann hvatti til þess að íslensk stjórnvöld gerðu ráðstafanir strax til að forða hruni í landinu.

Geir H. Haarde taldi að íslensk stjórnvöld hefðu búið í haginn fyrir versnandi ytri skilyrði með þeim ráðstöfunum sem gripið hefði verið til á undanförnum vikum. Hann kvaðst því ekki sammála prófessornum um að stjórnvöld hér væru aðgerðalaus. Geir hafnaði því líka að Fjármálaeftirlitið hefði varið útþenslu bankanna eins og Wade hélt fram. Hann sagði hins vegar rétt að bankarnir hefðu vaxið Seðlabankanum og Fjármálaeftirlitinu yfir höfuð.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar