Grein sem Einar Már Guðmundsson rithöfundur birti í Morgunblaðinu í byrjun desember varð Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra hvatning til að gefa út bók með safni greina og ritgerða þar sem rök eru færð fram gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu. Bókin kom út í dag hjá Bókafélaginu Uglu undir heitinu Hvað er Íslandi fyrir bestu?
Í blaðagrein Einars Más, sem Björn vitnar til, eru raktar ýmsar ástæður fyrir því að Íslendingar ættu að hafna aðild að Evrópusambandinu. Einar Már bendir þar á að sambandið hafi engan áhuga á þjóðinni og menningararfi hennar heldur ásælist auðlindirnar, orkuna, vatnið og fiskinn. Íslenskir stjórnmálamenn fagni því að ábyrgðin á stjórn landsins flytjist úr landi; þá geti þeir kennt ópersónulegum skriffinnum í Brussel um allt sem aflaga fari.
Björn segir Einar Má vera öflugan baráttumann fyrir betra þjóðlífi eftir bankahrunið og tekur upp kafla kafla úr grein hans í formála bókarinnar með sýnilegri velþóknun. „Hér kveður Einar Már skýrt að orði og eins og stílsnillingum er einum fært. Orð hans urðu mér hvatning til að setja það efni, sem hér birtist saman á einn stað og leggja það fram til umræðu.“
Í lok formáls dregur Björn saman afstöðu sína til Evrópusambandsins í fimm meginpunkta. Hann skrifar: Afstaða mín er skýr og get ég kynnt hana í fimm punktum:
1. Aðild Íslands að Evrópusambandinu er óþörf, evrópskum hagsmunum Íslands er vel borgið með samningnum um evrópska efnahagssvæðið og Schengensamstarfinu. 2. Íslendingar hafa ekki nýtt sér til fulls ákvæði samningsins um evrópska efnahagssvæðið til áhrifa á evrópska löggjöf og reglur. Tillögum Evrópunefndar um það efni hefur ekki verið hrundið í framkvæmd. 3. Samstarf í öryggismálum er annars vegar tryggt með varnarsamningnum við Bandaríkin og aðild að Schengen-samstarfinu. 4. Unnt er að taka upp nýjan gjaldmiðil án aðildar að Evrópusambandinu. 5. Óhjákvæmilegt er að leggja málið í dóm þjóðarinnar og því þarf að leita umboðs hennar, áður en send er aðildarumsókn til Evrópusambandsins, og að nýju, áður en aðild er samþykkt. Stjórnarskránni verður að breyta.
