Mánudagur - 19.1 2009 - 08:40 - Ummæli ()

Kaupþing: Mál Al-Thanis hjá FME síðan í haust. Milljarðar millifærðir á erlenda reikninga fyrir hrun

kaupthing-21.jpgFjármálaeftirlitið hefur frá því í haust haft til skoðunar kaup Al-Thanis, bróður emírsins af Katar, á 25 milljarða króna hlut í Kaupþingi skömmu fyrir hrun. Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjórans hafi grunað að ekki væri allt með felldu í þeim viðskiptum og gert FME viðvart í nóvember.

Þá mun FME þegar haft veður af málinu en óvíst er um stöðu rannsóknarinnar.

Á Stöð 2 í gærkvöldi kom fram að tap Kaupþings vegna kaupa Al-Thanis nemi 37,5 milljörðum króna eða rúmum 24 milljörðum standist fullyrðing Telmu Halldórsdóttur umboðsmans Al-Thanis um að hann hafi skömmu fyrir hrun bankans greitt honum rúma 13 milljarða króna.

Ólafur Þ. Hauksson, sérstakur saksóknari bankahrunsins, vildi ekki tjá sig um málið við Fréttablaðið og bendir á að embættið taki ekki formlega til starfa fyrr en í febrúar. Hann reiknar þó með að almennt eigi mál eftir að berast embættinu frá Fjármálaeftirlitinu og skilanefndum.

Hinsvegar sé málið skoðað víðar.
Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, sagði að farið yrði yfir málið í dag en meira gæti hann ekki sagt. Tilefni rannsóknarinnar sé umfjöllunfjölmiðla undanfarna daga. Eftir því sem næst verði komist útiloki menn ekki að þarna hafi verið um sýndarviðskipti að ræða.

Al-Thani eignaðist 5% hlut í Kaupþingi 22. september, samkvæmt tilkynningu til Kauphallarinnar. Eignarhaldsfélagið Q Iceland Finance var skráð fyrir hlutnum.

Nú virðist sem Kaupþing hafi sjálft fjármagnað kaupin. Morgunblaðið upplýsir að þetta hafi verið gert þannig að tvö félög sem skráð eru á Jómfrúreyjum hafi lánað því þriðja, sem hafi aftur látið Q Iceland Finance hafa fé. Félögin á Jómfrúreyjum hafi fengið peninga hjá
Kaupþingi með veði í bréfunum sjálfum. Annað félagið sé í eigu Ólafs Ólafssonar, sem var næst stærsti hluthafi í Kaupþingi, í gegnum félagið Kjalar.

Í Morgunblaðinu í dag kemur fram að síðustu vikurnar fyrir fall Kaupþings hafi yfir hundrað milljarðar króna verið millifærðir á reikninga erlendra félaga í eigu viðskiptavina bankans. Um hafi verið að ræða lán til þessara félaga gegn veðum í skuldabréfum sem bankinn gaf sjálfur út.

Fyrrverandi stjórnarmenn fullyrða að ekkert óeðlilegt hafi verið við lánafyrirgreiðsluna og afgreiðsla lánanna hafi farið fyrir lánanefnd bankans.

En þrátt fyrir að verðmæti skuldabréfanna hafi sífellt minnkað vegna óvissu á alþjóðamörkuðum hafi alltaf verið lánað meira út á bréfin. Það hafi meðal annars verið gert til að mæta kröfu Deutsche Bank um viðbótartryggingar. Þýski bankinn hafi líka lánað til
skuldabréfakaupanna.

Þessi viðskipti eru sérstaklega tekin fyrir í skýrslu PriceWaterhouseCoopers, sem skilað var til Fjármálaeftirlitsins.
Það er í verkahring Fjármáleftirlitsins að rannsaka málið nánar og skoða hvort ekki hafi verið um eðlileg viðskipti að ræða.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar