Hávær mótmæli – Össur segist virða rétt fólks til að tjá skoðanir sínar
Fréttamaður Ríkisútvarpsins náði tali af Össur Skarphéðinssyni inni í alþingishúsinu rétt í þessu en fyrir utan húsið geysa mikil mótmæli.
Össur sagðist skilja það vel að fólk vildi tjá sig við þessar aðstæður og að það væri þeirra lýðræðislegi réttur.
„Ég get þó ekki séð að kröfurnar séu skýrar ef marka má spjöldin en við vitum að það er reiði, kvíði og óvissa í fólki,“ sagði hann og bætti því við að hann hefði sjálfur tekið þátt í mótmælum og væri ánægður þegar fólk nýtti sér rétt sinn til að koma skoðunum sínum á framfæri.
Spurður að því hvort hann væri ánægður með þær skoðanir sem kæmu fram í mótmælunum sagði hann að þetta væru skoðanir á ástandi sem hefði mótast á löngum tíma.
„Ég vildi að staðan væri öðruvísi. Við erum nú í tvöfaldri kreppu, banka -og gjaldeyris og það mun taka tíma að vinna okkur út úr þessu. Verstu erfiðleikarnir eru ekki komnir fram og þetta mun versna en framundan er nokkuð skýr spá, landsframleiðsla mun aukast og kjörin batna. Núna er ríkisstjórnin að grípa til aðgerða sem eiga að lina þjáningar fólks.“
En stafa mótmælin ekki meðal annars af því að fólk telur sig ekki sjá neinar aðgerðir?
„Það er margt sem á eftir að koma fram en fólk er kannski ekki ánægt af því það er kvíðið næstu mánuðum. Þetta er allt eðlilegt,“ svaraði Össur og bætti því við að þetta segði hann í krafti þeirra upplýsinga sem hann hefði fengið að undanförnu.
„Við höfum alltaf sagt að verstu mánuðirnir verði þegar líður á veturinn en upp úr því mun þetta batna með margvíslegum hætti. Menn eru að reyna það sem þeir geta… en fólkið hefur allan rétt til að vera óánægt með hvað þetta gengur seint. Þetta er erfiðasta kreppa sem við höfum lent í og jafnvel erfiðari en aðrar þjóðir en enginn þjóð hefur þó sömu möguleika og við til að rífa okkur upp úr þessu,“ sagði iðnaðarráðherra að lokum og minntist í því samhengi á auðlindir þjóðarinnar og hugsalegan olíufund.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
