Bræðurnir Vincent og Robert Tchenguiz fengu tugi milljarða lánaða frá Kaupþingi hér á landi, í Bretlandi og Lúxemborg mánuðina fyrir bankahrunið. Veðin fyrir lánunum eru að mestum hluta í breskum fasteignafélögum en breskur fasteignamarkaður er gott sem hruninn. Lánin voru veitt á sama tíma og nær ógjörningur var fyrir íslensk fyrirtæki að fá fyrirgreiðslu í íslenskum bönkum.
Fréttastofa Stöðvar 2 greindi frá þessu í gærkvöldi.
Stöð 2 sagði að Tchenguiz bræður hefðu verið í umfangsmiklum viðskiptum við Kaupþing. Robert eigi sæti í stjórn Existu en hann hafi eignast um 5% hlut í félaginu í skiptum fyrir hlut í finnska félaginu Sampo. Exista var stærsti hluthafi Kaupþings. Bræðurnir hafi aðallega fjárfest í fasteignum, auk þess sem Robert hafi átt hlut í kráarkeðjunni Mitchells &Butler og Sainsbury . Fréttir af tapi þeirra bræðra í fjármálakreppunni hafa verið plássfrekar í erlendum blöðum að undanförnu.
Heimildir fréttastofu Stöðvar 2 herma að félög tengd þeim bræðrum hafi fengið yfir tugi milljarða að láni frá Kaupþingi hér á landi, Singer & Friedlander í Bretlandi og Kaupþingi í Lúxemborg frá síðasta sumri og fram að bankahruni. Síðasta lánið hafi verið veitt í byrjun október, nokkrum dögum fyrir bankahrun.
Fjármálaeftirlit og fleiri opinberir aðilar kanna nú þessi mál. Heimildir fréttastofu Stöðvar 2 herma einnig að verið sé að skoða hvort að þeir Tchenguiz bræður séu tengdir öðrum félögum sem einnig fengu mikla fyrirgreiðslu hjá Kaupþingi.
