Mánudagur - 26.1 2009 - 10:34 - Ummæli ()

Fullyrt að minnihlutastjórn Samfylkingar og Vinstri grænna sé tilbúin. Ingibjörg forsætisráðherra

isg42.jpgFullyrt er á vefmiðlinum Vísi að náðst hafi samkomulag um að mynda minnihlutastjórn Samfylkingar og Vinstri grænna sem Framsóknarflokkurinn og Frjálslyndi flokkurinn muni verja vantrausti.

Þar segir að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir verði forsætisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. Embætti forseta Alþingis falli í skaut Framsóknarflokksins og Guðjón Arnar Kristjánsson verði formaður sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar.

Vísir segist hafa borið þetta undir Steingrím J. Sigfússon og Guðjón Arnar Kristjánsson og hafi þeir báðir neitað þessu.

Og Ögmundur Jónason, þingflokksformaður Vg neitar þessu líka. Hann segir í samtali við DV að ekkert samkomulag sé í höfn varðandi myndun minnihlutastjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna. Hann segir að þingflokkur Vinstri grænna bíði átekta frá fundum þingflokka Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks.


Ummæli:

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Fréttir

Facebook

Facebook vinir

Facebook síða Twitter síða RSS straumar