Ráðning Kristjáns Guy Burgess sem aðstoðarmanns Össurar Skarphéðinssonar í utanríkisráðuneytinu kann að vera fyrirboði þeirra pólitísku tíðinda að Össur ætli að styðja Dag B. Eggertsson til formennsku í Samfylkingunni. Þetta er mat Andrésar Jónssonar fyrrum formanns Ungra jafnaðarmanna. Hann fjallar um málið á Eyjubloggi sínu í dag.
Kristján Guy hefur lengi verið helsti pólitíski ráðgjafi Dags. Aðalverkefni hans undanfarin ár hafa hins vegar falist í ráðgjöf fyrir íslenska auðmenn og útrásarvíkinga. Þá hefur hann starfað mikið fyrir forseta Íslands, Ólaf Ragnar Grímsson, en Kristján setti ráðgjafarfyrirtæki sitt Global Center (Alþjóðaver) upphaflega á fót 2005 með fyrirgreiðslu forsetans. Fjárstuðningur frá Róbert Wessman, Björgólfi Thor Björgólfssyni og fleiri auðmönnum er talinn hafa komið fótunum undir fyrirtækið.
Egill Helgason segir í bloggfærslu á Eyjunni í dag, að í nýútkominni ævisögu Ólafs Ragnars eftir Guðjón Friðriksson sé fjallað um störf Kristjáns Guy fyrir forsetann. Þar komi fram að fyrirtæki hans hafi starfað náið með forsetanum að ýmsum verkefnum og farið með honum í fjölmargar ferðir til útlanda – og einnig að það hafi unnið með Björgólfi Thor Björgólfssyni, Róbert Wessman og fleiri forystumönnum í viðskiptalífinu. Kristján hafi líka á undanförnum misserum starfað að verkefnum á vegum utanríkisráðuneytissins og iðnaðarráðuneytisins.
Egill vitnar í ævisögu forsetans þar sem fram komi að Global Center Kristjáns sé öðrum þræði eins konar leynivopn Ólafs Ragnars. Vegna mannfæðarinnar á forsetaskrifstofunni hafi það geta sinnt ýmsum nauðsynlegum verkefnum sem forsetinn hafi haft frumkvæði að eða gengist fyrir. Segja megi að Ólafur Ragnar, Örnólfur Thorsson og Kristján myndi þríeyki sem vinni náið saman að mörgum málum.
Andrés Jónson telur, sem fyrr segir, að ráðning Kristjáns boði pólitísk tíðindi innan Samfylkingarinnar. Kristján sé nánasti pólitíski ráðgjafi Dags B. Eggertssonar og Össur sé að líkindum að gefa til kynna að hann veðji á Dag sem framtíðarforystumann Samfylkingarinnar.
