Jón Ásgeir Jóhannesson, starfandi stjórnarformaður Baugs, segir á Vísi.is að aðgerðir Landsbankans séu „spark í punginn“.
Í viðtali við RÚV í sagðist Jón Ásgeir hafa upplýsingar um að Davíð Oddsson hafi sett það sem skilyrði fyrir starfslokum í Seðlabankanum að Baugur færi fyrst í þrot.
„Þetta er pungspark frá Landsbankanum“ segir Jón Ásgeir í viðtalinu við Vísi. „Það hefur það í för með sér að Bretar munu eignast nokkur af bestu fyrirtækjum í eigu Íslendinga á spottprís. Á meðan við ætlum að borga Icesave upp í topp þá gefum við á sama tíma Bretum fyrirtækin okkar. Ég er viss um að Philip Green dansar stríðsdans í stofunni heima hjá sér núna því hann á eftir að eignast stóran hluta af fyrirtækjum okkar nær ókeypis,“ segir Jón Ásgeir.
Hann segist ekki vita ástæðu Landsbankans fyrir þessum aðgerðum en vísar á skilanefnd Sjálfstæðisflokksins og segir það varla tilviljun að þetta komi á sama tíma og Davíð Oddssyni sé sagt upp í Seðlabankanum.
Forstjórar fyrirtækja Baugs í Bretlandi hafi haft samband við sig og verið furðu lostnir.Jón Ásgeir segir um framtíð Baugs að nú verði leitað allra leiða til að bjarga því sem bjargað verður. Þessar aðgerðir muni ekki hafa áhrif á rekstur Haga eða 365 þar sem þau séu ekki í eigu Baugs.
Í viðtali við RÚV segir Jón Ásgeir að ákvörðun Landsbankans um að slíta viðræðum um endurskipulagningu og björgun fyrirtækisins komi sér á óvart.
Þá kveðst hann hafa upplýsingar um að Davíð Oddsson hafi sett það sem skilyrði fyrir starfslokum í Seðlabankanum að Baugur færi fyrst í þrot.
Baugur hafi lagt fram áætlun um að greiða allar skuldir og aðgerð Landsbankans sé fjandsamleg. 50 þúsund störf í Bretlandi hafi verið sett í uppnám.
