Fimmtudagur - 5.2 2009 - 14:41 - Ummæli ()

Svar forsetaembættisins við fyrirspurn Eyjunnar um Alþjóðaver

Hér fer á eftir í heild svar Örnólfs Thorssonar forsetaritara, fyrir hönd embættis Forseta Íslands, við fyrirspurn Eyjunnar um störf Alþjóðavers og Kristjáns Guy Burgess í þágu embættisins:

„Alþjóðaver hefur unnið að verkefnum á sviði loftslagsbreytinga, jarðhita og umhverfismála fyrir embætti forseta Íslands. Má í því sambandi nefna undirbúning alþjóðlegrar ráðstefnu á Íslandi um loftslagsbreytingar (Global Roundtable on Climate Change) sem forseti skipulagði í samvinnu við Jeffrey Sachs hagfræðing og Columbia háskólann; kynningu á árangri Íslendinga í nýtingu jarðhita, bæði gerð sérstaks kynningarrits sem og ritstjórn skýrslu sem forseti lagði fyrir Orku- og umhverfisnefnd Öldungadeildar Bandaríkjaþings; undirbúning að ráðstefnu um nýtingu jarðhita í Djíbútí og öðrum fátækum ríkjum í austanverðri Afríku. Jafnframt vann Alþjóðaver að undirbúningi alþjóðlegs samstarfsverkefnis um bindingu koltvísýrings í basaltlögum, en forseti hafði frumkvæði að því að koma á samvinnu milli Háskóla Íslands, Columbia háskólans, háskólans í Toulouse og Orkuveitu Reykjavíkur um það verkefni. Þá má nefna að Alþjóðaver hefur komið að undirbúningi samvinnuverkefnis íslenskra, bandarískra og indverskra jöklafræðinga sem felur í sér rannsóknir á bráðnun jökla í fjöllum Himalaya, en forseti beitti sér fyrir slíkri samvinnu í framhaldi af þátttöku sinni í alþjóðlegu umhverfisþingi á Indlandi.

Ekki hefur verið gerður formlegur samningur við Alþjóðaver um ofangreind verkefni en greitt fyrir þau eftir því sem þau voru unnin. Fyrir þau hefur embætti forseta greitt Alþjóðaveri 1.655.850,- kr.

Auk þess hefur Alþjóðaver, á vegum annarra aðila, unnið að nokkrum verkefnum sem forseti hefur tengst. Má þar nefna forvarnardaginn sem haldinn hefur verið í öllum grunnskólum landsins undanfarin tvö ár í samvinnu ÍSÍ, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Skátahreyfingarinnar og UMFÍ og samstarfsverkefni evrópskra borga um baráttu gegn fíkniefnum (Youth in Europe: Against Drugs) sem myndað var að frumkvæði Reykjavíkurborgar. Forseti er verndari beggja þessara verkefna. Einnig má nefna undirbúning að alþjóðlegri samvinnu um að nýta í Afríku ódýr lyf við eyðni, en lyfjafyrirtækið Actavis vann að þróun slíkra lyfja og áhugi var á að tengja þá vinnu við Afríkuverkefni á grundvelli þúsaldarmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. Þá vann Alþjóðaver að undirbúningi og framkvæmd alþjóðlegrar ráðstefnu um siglingar skipalesta á Atlantshafi í síðari heimsstyrjöldinni en hún var haldin í Háskóla Íslands að frumkvæði samtaka gamalla sjómanna. Loks hefur Alþjóðaver unnið að ýmsum verkefnum fyrir utanríkisráðuneytið sem forseti hefur átt aðild að. „


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar