Björn Bjarnason fyrrverandi dómsmálaráðherra brást snarlega við og stöðvaði áform Haraldar Johannessen ríkislögreglustjóra um að flytja til landsins sérbúna óeirðabíla frá dönsku lögreglunni. Ríkislögreglustjóraembættið taldi þeirra þörf þegar mótmælin gegn ríkisstjórninni og Alþingi stóðu sem hæst á dögunum.
Ríkisútvarpið sagði frá þessu í hádegisfréttum.
Fram kom að bílarnir hafi verið komir á bryggju í Árósum og tilbúnir til flutnings hingað með Helgafelli, þegar ákvörðun var tekin um að hætta við áformin. Dómsmálaráðherra hafði þá reifað málið í ríkisstjórninni.
Fréttastofa RÚV kveðst hafa heimildir fyrir því að skoðanamunur hafi verið um það á milli dómsmálaráðherra og Stefáns Eiríkissonar, lögreglustjóra, á höfuðborgarsvæðinu, annars vegar og ríkislögreglustjóra hins vegar um hvernig taka ætti á mótmælunum. Hafi Haraldur Johannessen viljað ganga harðar fram en gert var.
Í yfirlýsingu frá embætti ríkislögreglustjóra, sem lesin var í fréttatímanum, er staðfest að innflutningur óeiðrabíla hafi verið kannaður, en sagt að það hafi verið gert í samráði við dómsmálaráðherra og lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu. Það hafi verið sameiginleg niðurstaða þeirra að gera þetta ekki.
146
98