eyjan.is

Sunnudagur 08.02.2009 - 17:44 - Ummæli ()

Davíð hættir ekki. Segir Jóhönnu hlálega og áróðurs- og hótunarbréf hennar þverbrjóta lög

davidodds1.jpgDavíð Oddsson, seðlabankastjóri, ætlar ekki láta af embætti. Hann segist aldrei hafa hlaupist frá neinu verki sem hann hafi tekið að mér og muni ekki heldur gera það nú.

Í bréfi sem hann hefur sent Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, segir hann m.a. að bréf forsætisráðherra til hans um að hann hafi þverbrotið lög sem eigi að tryggja sjálfstæði Seðlabankans og það „sé einsdæmi í hinum vestræna heimi.“

„Það er hlálegt að ráðherra úr hópi þeirra sem hlustuðu ekki og sjálf lyfti ekki litla fingri til að stemma stigu við því sem var að gerast skuli nú ganga fram með beim hætti sem hún gerir.“ segir Davíð í bréfinu.

Hann segir auk þess uppsagnarbréfið bera öll merki þess að hafa verið ritað utan ráðuneytisins, hvort sem það hefur verið á  flokksskrifstofu eða annars staðar og verið brot á öllum venjum um embættisbréf af þessu tagi. „Það hefur aldrei tíðkast að bréf sem send eru embættismönnum séu birt áður en embættismaðurinn fær tækifæri til að svara þeim, hvað þá áður en hann fær tækifæri til að lesa þau. Bréf þetta virðist því eingöngu hafa verið hugsað sem áróðurs- og hótunarbréf og ber að harma það,“ segir Davíð.

Davíð segist hafa sagt Jóhönnu í símtali á þriðjudag að hann myndi ekki svara bréfinu fyrr en eftir þessa helgi og Jóhanna ekki gert athugasemdir við það.

Samkvæmt sjónvarpsfréttum RÚV ætlar Jóhanna ekki tjá sig um bréfið að svo stöddu. Í fréttatímanum var haft eftir Össuri Skarphéðinssyni iðnaðarráðherra að bréf Davíðs væri ekkert öðruvísi en hann hafði búist við.

„Þegar mér varð ljóst hvers konar bréf hafði borist heim til mín og kynnt í áróðursskyni áður en ég hafði tækifæri til að lesa það og frumvarp lagt fram til að fylgja eftir hótun í bréfinu, stóð hugur minn til þess að láta bréfinu ósvarað. Af augljósum ástæðum ber ég mikla virðingu fyrir því embætti sem núverandi forsætisráðherra gegnir. Og þrátt fyrir augljósa annmarka sem eru á öllum þessum málatilbúnaði vil ég ekki láta hjá líða að mín afstaða sé kunn. Ég var skipaður til starfa 20. október 2005 til ákveðins afmarkaðs tíma. Það starf hef ég reynt að rækja eins vel og ég kann. Það gleður mig, að jafnvel þeir sem helst vilja leggja til mín hafa ekki getað fundið neitt málefnalega athugavert við störf mín og reyndar tekið sérstaklega fram að við mín störf sé ekkert að athuga. Ég þurfi bara að fara frá af óefnislegum ástæðum,“ segir í bréfi Davíðs.

Hann segir að nýtt frumvarp „sem forsætisráðherra hótaði bankastjórninni með“ sé nú komið fram en slíkir gallar séu á því að engar líkur séu á að Alþingi samþykki það óbreytt. Ná þurfi samkomulagi allra flokka um gerð jafn vandaðs frumvarps og eining náðist um 2001.

„Heift út í gamla pólitíska andstæðinga sem einhverjum finnst þeir eiga óuppgerðar sakir við má ekki blinda fólk svo að það geti ekki séð einni mikilvægustu stofnun landsins borgið með því að hafa lagaumgjörðina um hana vandaða og unna í sæmilegri sátt, jafnt innan þings sem utan.“

Davíð lýkur bréfi sínu þannig: „Það verður æ fleiri mönnum ljóst að formaður bankastjórnar persónulega og bankastjórn Seðlabankans sameiginlega hafa á undanförnum árum aftur og aftur varað við því að í óefni stefndi i bankamálum þjóðarinnar og þrýst á því sem ábyrgð báru um að bregðast við í tíma. Það er hlálegt að ráðherra úr hópi þeirra sem hlustuðu ekki og sjálf lyfti ekki litla fingri til að stemma stigu við því sem var að gerast skuli nú ganga fram með beim hætti sem hún gerir.

Ég hef hins vegar aldrei hlaupist frá neinu verki sem ég hef tekið að mér og mun ekki heldur gera það nú.“

Bréf Davíðs í heild.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is