Ólafur Ragnar: Ekki hægt að ætlast til þess að við borgum innistæður hjá Kaupþingi í Þýskalandi
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, segir að ekki sé hægt að ætlast til þess að Íslendingar endurgreiði þýskum sparifjáreigendum innistæður þeirra hjá Kaupþingi í Þýskalandi.
Þetta kemur fram í viðtali við hann í þýskri útgáfu Financial Times. Ummæli forsetans vekja mikla athygli og eru ein aðalfrétt blaðsins í dag.
Blaðið hefur eftir forsetanum að ósanngjarnt sé að erlendir fjárfestar ætlist til þess að Íslendingar beri einir byrðar fjármálakreppunnar. Hann kveðst undrandi á kröfum erlendra þjóða á hendur Íslendingum. Ábyrgðin á bankahruninu liggi ekkert síður hjá evrópska bankakerfinu en Íslendingum.
Blaðið segir að ummæli forseta Íslands stangist á við fyrirheit sem fulltrúum þýsku sparifjáreigendanna hafi verið gefin á fundi með fulltrúum Kaupþings í Reykjavík í síðustu viku. Þar hafi skilanefnd bankans lofað því að allar innistæðurnar yrðu greiddar til baka þótt ekki sé ljóst hvenær það geti orðið.
Fram kemur að 30 þúsund Þjóðverjar hafi lagt fé inn á reikninga hjá Kaupþingi. Nemi innistæður þeirra um 300 milljónum evra.
Fleiri þýskir fjölmiðlar fjalla um ummæli forsetans í dag.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
