Þýskt stórblað: Forsetinn sagður grafa undan viðleitni til að endurvekja trú á Íslandi erlendis
Þýska stórblaðið Frankfurter Allgemeine Zeitung gagnrýnir forseta Íslands, Ólaf Ragnar Grímsson, í grein sem það birtir í dag fyrir ýmis ummæli hans í erlendum fjölmiðlum að undanförnu. Talað er um að hann hegði sér eins og lýðskrumari og sagt að orð sem hann láti falla um erlendar þjóðir séu afar óviðeigandi í ljósi þeirra stórfelldu fjárhagsaðstoðar sem Íslendingar séu aðnjótandi.
Kveikjan að umfjöllun blaðsins eru orð sem höfð voru eftir forsetanum í þýskum fjölmiðlum í gær um að Íslendingar mundu ekki greiða þýskum sparifjáreigendum innistæður þeirra hjá útibúi Kaupþings í Þýskalandi. Ólafur Ragnar sagði í yfirlýsingu í gær að rangt hafi verið eftir sér haft.
Þýska blaðið segir að Ólafur Ragnar skapi sífellt meiri vandræði á Íslandi með óvarlegu tali sínu. Rakinn er pólitískur ferill hans áður en hann var kosinn forseti og rifjað upp að hann verið harðskeyttur í stjórnmálaumræðum. Það hafi lítið breyst. Fjallað er um ummæli sem hann lét falla á fundi með erlendum sendiherrum á Íslandi í nóvember sl. og það uppnám sem þau vöktu.
Í greininni er einnig vikið að Davíð Oddssyni seðlabankastjóra og baráttu ríkisstjórnarinnar við hann. Sagt er að þeir Ólafur Ragnar hafi lengi verið svarnir óvinir en nú eigi þeir það sameiginlegt að skapa ríkisstjórn landsins erfiðleika. Davíð með því að neita að víkja úr embætti, Ólafur Ragnar með því að grafa undan viðleitni stjórnarinnar til að endurvekja traust og tiltrú á Íslandi á alþjóðavettvangi.
Greinina má lesa hér.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
