Fimmtudagur - 12.2 2009 - 10:47 - Ummæli ()

Sala Morgunblaðsins: Reynt að koma í veg fyrir að kaupendur séu „leppar“ annarra

moggi-hadegismoar.jpgNýi Glitnir reynir að tryggja að kaupendur Árvakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins, séu ekki „leppar“ fyrir þriðja aðila. Það er gert með því að spyrja tilboðsgjafa sérstaklega hvort þeir komi fram í þágu annarra. Sterkur orðrómur hefur verið á kreiki um að ástralskur fjárfestir, Steve Cosser, sem vill eignast Morgunblaðið – og raunar fleiri fjölmiðla hér á landi – gangi erinda innlendra manna. Því harðneitar hann þó sjálfur.

Fjallað er um málið á fréttaskýringarvefnum AMX í dag. Þar kemur fram að fjárfestar þurfa að leggja fram skuldbindandi tilboð í Árvakur ekki síðar en 17. febrúar næstkomandi. AMX segir að í leiðbeiningum um gagnaskil fjárfestanna sé spurt: „Er lögaðili raunverulegur aðili viðskiptanna, þ.e. kemur ekki fram í þágu þriðja aðila? Ef svo er verður að gefa upplýsingar um hver sá þriðji aðili er.“

„Sagt á mannamáli er gengið eftir því hvort verið sé að „leppa“ kaupin“, segir AMX.

Fram hefur komið að fjórir aðilar sýna Árvakri áhuga: Ástralinn Steve Cosser, Óskar Magnússon fyrir hönd hóps fjárfesta, Hallbjörn Karlsson og Árni Hauksson og Almenningshlutafélag um rekstur Morgunblaðsins sem Vilhjálmur Bjarnason fer fyrir.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar