eyjan.is

Fimmtudagur 12.02.2009 - 15:03 - Ummæli ()

Time útnefnir Davíð Oddsson einn 25 manna sem bera mesta sök á efnahagshruninu

david_time25.jpgTímaritið Time hefur sett Davíð Oddsson seðlabankastjóra á 25 manna lista yfir þá sem taldir eru eiga mesta sök á efnahagshruninu.

Greinin er sú mest lesna á vef tímaritsins sem stendur.

Í umfjöllun Time segir: „Í þá tvo áratugi sem Davíð Oddsson gegndi embætti, fyrst sem forsætisráðherra Íslands og síðar sem seðlabankastjóri, innleiddi hann frjálst markaðshagkerfi, einkavæddi þrjá helstu banka landsins, fleytti gjaldmiðlinum og hóf gullaldarskeið hins frjálsa framtaks. Úps! Í staðinn er Ísland orðið að skólabókardæmi um hagkerfi sem bræðir úr sér: Bankarnir þrír sem voru skuldsettir í botn eru gjaldþrota, þjóðarframleiðslan gæti fallið um 10% á þessu ári og AGS er kominn til aðstoðar eftir að gjaldmiðillinn missti helming verðgildisins. Góð tilraun.“

Á vef Time geta lesendur raðað mönnunum á listann samkvæmt samkvæmt eigin mat á ábyrgð hvers þeirra. Sem stendur er Dick Fuld, fyrrverandi forstjóri Lehman Brothers, efstur á listanum og þannig talinn bera mesta ábyrgð á því hvernig komið sé.

Davíð er í 19. sæti listans, næstur á fyrrverandi seðlabankastjóra og fjármálaráðherra bandaríkjanna, þeim Alan Greenspan og Henry Paulson.

Davíð er einn þriggja „útlendinga“ á lista Time. Hinir eru Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, og Fred Goodwin, fyrrverandi bankastjóri Royal Bank of Scotland.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is