Föstudagur - 13.2 2009 - 11:42 - Ummæli ()

Auðmaður gefur Rauða krossinum peninga til að sinna sálrænum erfiðleikum í kreppunni

olafursamskip.jpgVelgerðarsjóðurinn Aurora, sem auðmaðurinn Ólafur Ólafsson, stjórnarformaður Samskipa og Alfesca, og kona hans Ingibjörg Kristjánsdóttir landslagsarkitekt, standa á bak við, veitti í gær Rauða krossinum 20 milljóna króna fjárstyrk sem meðal annars á að verja til að veita fólki sálrænan stuðning vegna efnhagsþrenginganna í landinu.

Frá þessu er sagt á fréttavef Morgunblaðsins í dag.

Ólafur Ólafsson hefur verið í sviðsljósinu að undanförnu vegna margs konar umdeildra fjármálagjörninga í tengslum við Kaupþing þar sem hann var stór eigandi fyrir hrun bankans.

Í stjórn velgerðarsjóðsins situr m.a. Sigurður Einarsson fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings. Hann hefur ekki síður verið í sviðsljósinu í tengslum við bankahrunið og efnahagsþrengingarnar.

Athygli vekur að í fréttatilkynningu frá Aurora-sjóðnum um úthlutunina eru nöfn stofnenda og stjórnarmanna hvergi nefnd og aðeins vísað á heimasíðu sjóðsins á netinu um frekari upplýsingar.

Samtals úthlutaði stjórn Auroru að þessu sinni 111,5 milljónum króna í styrki til sex verkefna á sviði mannúðar, mennta og menningar hérlendis og í Afríkuríkjunum Síerra Leóne og Mósambík, þar af til fjögurra verkefna sem sjóðurinn hefur ekki styrkt áður.

Aurora sjóðurinn var stofnaður í tengslum við fimmtugs afmæli Ólafs Ólafssonar og mikil veisluhöld í því sambandi í janúar 2007. Stofnfé sjóðsins var einn milljarður króna.

 


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar