Laugardagur - 14.2 2009 - 12:12 - Ummæli ()

Lúxusíbúð Jóns Ásgeirs í New York til sölu fyrir 3 milljarða. Stað- greiddi íbúðina fyrir tveimur árum

jonasgeirnewyork.jpgLúxusíbúð Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Ingibjargar Pálmadóttur á Manhattan í New York er komin á sölu. Ásett verð er 25 milljónir dollara sem jafngildir um þremur milljörðum íslenskra króna.

Frá þessu er sagt í fasteignablaði New York Times í dag.

Blaðið segir að Jón Ásgeir og Ingibjörg hafi keypt íbúðina, sem er í húsinu nr. 50 við Gramercy Park North, fyrir tveimur árum á 10 milljónir dollara. Þau hafi hrifist svo að húsnæðinu að nokkrum mánuðum seinna hafi þau einnig keypt þakíbúðina fyrir ofan með glæsilegu útsýni yfir Gramercy Park fyrir 14 milljónir dollara, þar af þurftu þau að borga 4 milljónir dollara til að losa um samning við fyrri eiganda. Þau réðust síðan breytingar til að tengja íbúðirnar saman í eina heild.

Allt var staðgreitt samkvæmt þinglýstum kaupsamningum segir New York Times.

Blaðið rekur síðan viðskiptaferil Jóns Ásgeirs og áhuga hans á fjárfestingum í verslunarrekstri í New York. Jafnframt er fjallað um hrun Baugsveldisins í kreppunni.

Hér fyrir neðan er teikning af annarri íbúðinni. Sýnir hún að rúmt hefur verið um þau hjón.

jonasgeiribud.jpg


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar