Geir Haarde sakar Jóhönnu Sigurðardóttur um ósannsögli
Geir Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, sakaði Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra um ósannsögli í fyrirspurnatíma á Alþingi í dag.
Geir sagðist sjálfur hafa sent fyrirspurn til starfsmanna Alþjóðagjaldeyrissjóðsins vegna athugasemda AGS til forsætisráðneytisins um frumvarp til nýrra laga um Seðlabankann. Geir sagðist hafa fengið það svar frá AGS, að í samræmi fastar vinnureglur færu athugasemdir sjóðsins til stjórnvalda og „það er stjórnvalda að ákveða hvort þeim verður dreift til annarra.“ Jóhanna hafi hins vegar sagt á þingi að sjóðurinn hefði sjálfur beðið um trúnað vegna upphaflegra athugasemda sinna um frumvarpið. Geir sagði að þetta þýddi með öðrum orðum að það sem hafi komið fram í yfirlýsingu forsætisráðneytisins hafi ekki verið rétt. „Það var ekki farið rétt með. Það var ósatt.“ Geir ítrekaði kröfu Sjálfstæðismanna um að bráðabirgðaathugasemdir sjóðsins yrðu birtar.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra mórmælti því harðlega að rangt hefði verið farið með. Sjóðurinn hefði beðið um trúnað við upphaflegar athugasemdir. Hún sagði að öll gögn málsins yrðu send til þess þingmanns [Birgis Ármannssonar] sem beðið hefði um þau. „Ég hygg að í þeim gögnum komi fram, að í þessum upphaflegu athugasemdum eða tæknilegu ábendingum sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn sendi okkur kom fram að það var óskað eftir trúnaði á þeim upplýsingumsem þar voru sendar.“
Geir sagði ríkisstjórnina jafnframt ekki hafa leitað fulltingis hjá aðal- og varafulltrúa Íslands í sjóðsráði hjá AGS vegna þess að það væru Davíð Oddsson seðlabankastjóri og Bolli Þór Bollason, fyrrverandi ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
