Jóhanna Sigurðardóttir nýtur mests trausts. Aðeins þriðjungur ber traust til forseta Íslands
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra nýtur mests trausts íslenskra stjórnmálamanna, samkvæmt könnun Markaðs- og miðlarannsókna, MMR.
58,5% aðspurðra segjast bera mikið traust til Jóhönnu. Næst mests trausts njóta þau Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra með 48,5%, Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra (41,3%), Ragna Árnadóttir, dóms- og kirkjumálaráðherra (40,5%) og Steingrímur J. Sigfússon fjármála, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra (38%).
Aðeins um þriðjungur svarenda segist bera mikið traust til forseta Íslands og einungis fjórðungur segist bera traust til Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, formanns Samfylkingarinnar.
Neðstir á traustlista MMR eru þeir Davíð Oddsson, seðlabankastjóri (10,5%) og Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, (8,6%).


Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
