Á aukakjördæmisþingi samfylkingarfólks í Suðurkjördæmi 15. febrúar var ákveðið að velja í fimm efstu sætin á framboðslista flokksins í komandi alþingiskosningum með netprófkjöri hinn 7. mars.
Rétt til þátttöku í netprófkjörinu hafa allir félagar í Samfylkingunni í Suðurkjördæmi auk þeirra kjósenda Suðurkjördæmis sem sækja sér aðgangslykil að prófkjörinu, segir í tilkynningu.
Kjósendur velja fimm nöfn á kjörseðlinum og númera frá 1–5. Þegar talning atkvæða liggur fyrir skal tryggja jafnt kynjahlutfall í 1. og 2. sæti.
Næst skal hugað að jafnréttisreglu Samfylkingarinnar um hvort kyn skuli hafa að lágmarki 40% fulltrúa hvað varðar sæti 3-5.
Frambjóðendum er óheimilt að auglýsa í ljósvaka- , prent- og vefmiðlum. Kjördæmisráð gefur út sameiginlegt kynningarrit og gengst fyrir sameiginlegum fundum til kynningar á frambjóðendum.
Framboðsfrestur rennur út mánudaginn 23. febrúar.
