61% vilja endurúthlutun kvótans
61% svarenda í könnun MMR segjast hlynntir því að stjórnvöld afturkalli fiskveiðiheimildir og úthluti þeim aftur með breyttum reglum.
20,7% voru andvígir slíkum hugmyndum og 18,3% sögðust hvorki vera hlynnt
né andvíg hugmyndinni.
Af þeim sem styðja núverandi ríkisstjórn eru 74,3% sem sögðust hlynntir því að að stjórnvöld afturkalli gildandi fiskveiðiheimildir og úthluti þeim að nýju með breyttum reglum. Meðal þeirra sem segjast ekki styðja ríkisstjórnina voru 51,9% sem sögðust fylgjandi endurúthlutun fiskveiðiheimilda en 37,3% þeirra voru því andvígir.
Verulegur munur var á afstöðu svarenda eftir stuðningi þeirra við stjórnmálaflokka eins og sést á myndinni hér að neðan.
Þannig sögðust 35,7% sjálfstæðismanna hlynntir endurúthlutun fiskveiðiheimilda en 47,6% þeirra sögðust andvígir. 54,8% framsóknarmanna sögðust hlynntir endurúthlutun fiskveiðiheimilda en 30,3% þeirra sögðust andvígir. 69% stuðningsfólks Samfylkingarinnar kvaðst fylgjandi endurúthlutun fiskveiðiheimilda en 7,8% þess sagðist andvígt. Þá voru 76,9% Vinstri grænna hlynntir því að stjórnvöld endurskoði úthlutun fiskveiðiheimilda en 11,5% voru því andvígir.

Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
