Nær óhugsandi er talið að frumvarp ríkisstjórnarinnar um persónukjör nái fram að ganga á Alþingi þannig að hægt sé að koma nýjum leikreglum við í næstu alþingiskosningum.
Þetta varð ljóst eftir fund formanna stjórnmálaflokkanna í Alþingishúsinu í kvöld. RÚV greindi frá þessu.
Haft var eftir Geir H. Haarde formanni Sjálfstæðisflokksins að frumvarpið væri of seint fram komið. Undirbúningur kosninga væri hafinn hjá öllum flokkum og ákvarðanir víða teknar um prófkjör. Ekki væri hægt að breyta leikreglum eftir að leikurinn væri hafinn.
Geir sagði að sjálfstæðismenn væru ekki afhuga persónukjöri og taldi rétt að skoða það fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar.
Steingrímur J. Sigfússon formaður VG sagði að málinu yrði haldið áfram.
Samkvæmt heimildum Eyjunnar eru yfirgnæfandi líkur á því að persónukjör nái ekki fram að ganga að þessu sinni.
