Seðlabankafrumvarpið er eina málið á dagskrá Alþingis á morgun. Þingfundur hefur verið boðaður kl. 10.30 í fyrramálið. Þetta bendir til þess að ætlunin sé að reyna að fá málið afgreitt til þriðju umræðu á fundinum eða jafnvel freista þess að fá það afgreitt sem lög fyrir helgi.
Kjósi andstæðingar frumvarpsins að halda uppi löngum umræðum um það eða jafnvel efna til málþófs gæti afgreiðsla þess dregist.
Frumvarpið var afgreitt úr viðskiptanefnd í morgun gegn vilja sjálfstæðismanna sem töldu þörf á frekari umræðum um það. Meirihluti nefndarinnar, skipaður stjórnarliðum og framsóknarmönnum, gerir nokkrar tillögur um breytingar á frumvarpinu sem lúta að menntunarkröfum til seðlabankastjóra, stofnun embættis aðstoðarbankastjóra og skipun peningastefnunefndar. Jafnframt hefur meirihlutinn skilað nefndaráliti um frumvarpið.
Hvorki breytingartillögur né nefndarálit höfðu í kvöld borist frá minnihluta viðskiptanefndar, sjálfstæðismönnum.
Verði frumvarpið að lögum fær forsætisráðherra þegar heimild til að ráða seðlabankastjóra og aðstoðarbankastjóra til bráðabirgða meðan auglýst er eftir mönnum í stöðurnar. Lögin kveða á um að núverandi bankastjórar láti af störfum strax og þau taka gildi.
Heimildarmenn Eyjunnar telja öruggt að nú þegar sé búið að velja seðlabankastjóra og aðstoðarbankastjóra sem leysa munu Davíð Oddsson og Eirík Guðnason af hólmi. Ekki er vitað hverjir þeir eru.
