Fimmtudagur - 19.2 2009 - 07:50 - Ummæli ()

Geir: Hafði rétt fyrir mér svo langt sem það náði: Stendur ekki upp á mig að biðja afsökunar

johanna-geir1.jpgÍ tölvupósti sem Poul Thomsen, formaður sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) fyrir Ísland, sendi Geir H. Haarde á mánudagskvöld, tekur hann af allan vafa um að stjórnvöld voru beðin um að birta ekki bráðabirgðaathugasemdir AGS við frumvarp um Seðlabanka Íslands.

Geir segir þetta hafa verið óskýrt af hálfu AGS og hann hafi haft rétt fyrir sér svo langt sem það náði.

Hann segir í samtali við Fréttablaðið: „Ég skildi póstinn eins og hann kom til mín. Nú er komið fram að hann var ekki nægilega skýr og það dugar mér.“

Geir fullyrti í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi á mánudag að farið hafi verið með rangt mál, þegar Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði að AGS hefði beðið stjórnvöld að birta ekki bráðabirgðaumsögn sjóðsins. Lesa má nánar um það í þessari frétt eyjunnar.

Í tölvupóstinum segir Tomsen hafa heyrt að fyrri tölvupóstssamskipti við Geir um málið hefðu valdið misskilningi.

„Við sendum bráðabirgðaumsögn til að flýta vinnu við lagasetninguna,“ segir Thomsen í tölvupóstinum til Geirs. „Ég hefði átt að taka það sérstaklega fram að ég átti við lokaumsögnina; við báðum ríkisstjórnina um að birta ekki bráðabirgðaumsögnina. Ég vona að þetta skýri málið,“ segir Thomsen í niðurlagi tölvupóstsins.

Geir sagði um orðaskipti sín og forsætisráðherra á þinginu á mánudag  að til greina hafi komið að segja frá því að Thomsen hafi sent fyrrnefndan tölvupóst, þar sem útskýrt er hvernig í málum lá.

Thomsen sé hinsvegar maður sem hann ætli að vinna með, þó hann sé kominn í annað hlutverk. Ekki hafi staðið til að gera honum lífið erfiðara en efni stæðu til.

„Þetta eru mistök og hann segir það sjálfur að þetta hafi ekki verið nægilega skýrt,“  segir Geir, sem telur ekki að hann hafi látið of þung orð falla þegar hann sagði Jóhönnu hafa sagt ósatt.

„Hún og aðrir sem sitja í ríkisstjórninni hafa látið þyngri orð falla og það stendur ekki upp á mig að biðjast afsökunar. Það er alveg af og frá.“


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar