Seðlabanki Evrópu brást hart við risa-millifærslum til Landsbankans frá útbúinu í Lúxemborg
Evrópusambandið endurskoðar nú lagaheimildir sem lágu að baki risa-millifærslum til Landsbanka Íslands í fyrra frá Seðlabanka Evrópu í gegnum Landsbankann í Lúxemborg fyrir milligöngu Seðlabanka Lúxemborgar og útibús Landsbankans í Lúxemborg.
Viðskiptablaðið segir frá þessu í dag.
Um er að ræða lánveitingu Seðlabanka Evrópu til Landsbankans í Lúxemborg upp á 2 milljarða evra sem virðist hafa runnið áfram til móðurfélagsins Landsbankans á Íslandi, og Seðlabanki Evrópu hafði gert alvarlegar athugasemdir við.
Heimildarmenn Viðskiptablaðsins benda á að fjármálaeftirlitin í Lúxemborgar og á Íslandi svo og seðlabankar beggja landanna hefðu átt að vita í þó nokkurn tíma að þetta væri ekki góð hugmynd og bryti gegn almennri reglu að ekki megi lána meira en 25% af eiginfjárgrunni til eins einstaks aðila.
Landsbanki Íslands nýtti í þessu tilviki sérstaka undanþágu í núverandi tilskipun ESB um lán til móðurfélags banka. Samkvæmt upplýsingum Viðskiptablaðsins liggur nú fyrir frumvarp frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins um að afnema þessa undanþágu.
Í grein Viðskiptablaðsins er vitnað til þess sem Ingimundur Friðriksson seðlabankastjóri sagði um þetta mál í skýrslu sem hann opinberaði fyrir skömmu: „Um mitt ár 2008 brást Seðlabanki Evrópu hart við því sem hann taldi vera of miklar lántökur íslenskra banka frá honum í gegnum dótturfyrirtæki þeirra í myntbandalaginu. Lánin höfðu verið tekin á grundvelli reglna bankans um fyrirgreiðslu við fjármálafyrirtæki í löndum myntbandalagsins. Evrópski seðlabankinn krafðist þess að íslensku bankarnir endurgreiddu á skömmum tíma verulegan hluta þeirrar fyrirgreiðslu sem þeir höfðu nýtt sér í góðri trú. Að hluta a.m.k. voru endurgreiðslurnar fjármagnaðar með innlánum í erlendum útibúum.“
Fram kom í fréttum í desember að Landsbankinn í Lúxemborg er gjaldþrota. Í frétt Morgunblaðsins um málið þá kom fram að helstu kröfuhafar Landsbankans í Lúxemborg væru Evrópski seðlabankinn og Landsbankinn hér heima, sem hefði fengið 2.000 milljónir evra að láni hjá Seðlabanka Evrópu í endurhverfum viðskiptum fyrir Landsbankann á Íslandi.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
