Árna Johnsen byrlað eitur um skeið – grunar gjörningsmann en getur ekkert sannað
Sögusagnir hafa verið í gangi um að eitrað hafi verið fyrir Árna Johnsen, en Árni hefur aldrei viljað ræða það fyrrr en nú að hann gerir það í DV.
Eitrinu mun hafa verið komið fyrir í fæðubótarefni sem Árni tók á tímabili. Þeir sem hitt hafa Árna á síðustu árum munu hafa tekið eftir að hendur hans eru bólgnar og neglurnar illa farnar, segir á DV.is.
Árni segir að eitrið hafi valdið bólgunum og þeir sem best til þekktu hafi talið alveg á hreinu að eitrað hafi verið fyrir honum.
Það var þó ekki fyrr en Árni fór í afeitrunarmeðferð til Póllands að hann fékk þetta staðfest.
„Læknirinn sem stjórnar meðferðinni þar þurfti ekki einu sinni að spyrja mig. Hún sagði mér bara hvað kom fyrir. Ég sagði henni aldrei neitt,“ segir Árni, sem hafði lengi grunað að eitrað hefði verið fyrir honum.
Hann segist segist hafa ákveðnar hugmyndir um gjörningsmanninn en geti ekkert sannað.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
