eyjan.is

Sunnudagur 22.02.2009 - 17:08 - Ummæli ()

Atli Gíslason: Auðmenn skili hundruðum milljarða til baka úr „skattaskálkaskjólum“ erlendis

atli-gislason.jpgAtli Gíslason, lögmaður og þingmaður Vinstri grænna vill að reynt verði að grafast fyrir um fé þeirra auðmannanna sem hafi valdið hruni fjármálakerfisins og sem geymt sé í „skattaskálkaskjólum“ erlendis eins og hann kallar það. Hann telur að þetta fé geti samtals numið 500 til 1000 milljörðum króna og auðmennirnir eigi að „sjá sóma sinn í því“ að skila þessu fé til Íslands. Ef ekki þá geri þeir sjálfa sig útlæga og verði ekki vært hér á landi fyrir reiði almennings.

„Þessir 40-50 menn sem stóðu að þessu eiga að vera á válista hjá bönkunum. Bankarnir eiga ekki að eiga viðskipti við þá,“ sagði Atli í þættinum Silfri Egils í dag.

Atli vill að láta frysta eigur þessara einstaklinga vegna hugsanlegrar skaðabótaskyldu því augljós brotastarfsemi blasi við í nokkrum málum. Atli segist enn binda vonir við rannsókn hins sérstaka saksóknara en er „að verða býsna óþolinmóður.“

Hann nefndi í þættinum fjögur dæmi um „brotastarfsemi“ sem hann sagðist ekki skilja hvers vegna ekki væri verið að rannsaka. Í fyrsta lagi væri það 107 miljarða yfirdráttur Roberts Tchenguiz hjá Kaupþingi gegnum Exista, sem hafi falið í sér mismunun gagnvart öðrum hluthöfum. Í öðru lagi nefndi Atli 13,5 milljarða úttekt stofnfjáreiganda í Byr sparisjóði í ágúst, sem stjórnendur hafi mátt vita að félagið hefði ekki efni á. Í þriðja lagi nefndi Atli baráttumál Réttlæti.is vegna taps sem hlaust af uppgjöri peningamarkaðssjóðs Landsbankans. Atli sagði 70 milljarða hafa verið greidda út af reikningum peningamarkaðssjóðs Landsbankans síðustu fjóra dagana fyrir hrunið þannig að skerðing þeirra sem áttu fé þar nam rúmlega 30% í stað um 10%. Hann segir að þarna hafi átt sér stað upplýsingaleki og mönnum mismunað. Fjórða og versta dæmið sagði Atli svo vera fjármagnsflutningarnir frá Bretlandi, sem hafi verið meginástæða þess að Bretar beittu hryðjuverkalögunum. Hafi þetta verið þannig kunni sú aðgerð, segir Atli, að varða við landráð.

„Ég vona að hinn sérstaki ríkissaksóknari fari að taka enn til yfirheyrslu og skoða þetta. Þessi fjögur dæmi blasa við,“ sagði Atli. „Þetta á auðvitað að vera lögreglumál“ segir Atli „og það á að ná þessum peningum til baka með eignaupptöku.“

Sjá upptöku af Silfri Egils á vef RÚV.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is